Þjóðmál - 01.09.2016, Síða 43
legu viðskiptakerfi Evrópulanda (ETS), þar
sem fyrirtæki fá úthlutað heimildum og geta
uppfyllt kröfur með minnkun losunar eða
verslun með heimildir. Hinn hluti losunar-
innar er á ábyrgð ríkja og þarf ísland að draga
úr nettólosun um rúmlega fimmtung til 2020.
Ef áætlanir íslands og Noregs ganga eftir
munu losunarmarkmið ríkjanna eftir2020
verða tvískipt; annars vegar munu fyrirtæki
þurfa að uppfylla skyldur innan viðskipta-
kerfisins, en hins vegar þurfa ríkin tvö að taka
á sig skuldbindingar varðandi losun utan
viðskiptakerfisins.
íslensk stjórnvöld stefna að því að svipað
kerfi verði við lýði eftir 2020, samkvæmt
markmiðinu sem nú hefur verið tilkynnt.
ísland er þegar aðili að evrópsku viðskipta-
kerfi með losunarheimildir (ETS), skv. EES-
samningnum. Samkvæmt því fá fyrirtæki
úthlutað heimildum sem ganga kaupum og
sölum á sam-evrópskum markaði og er erfitt
að eyrnamerkja heimildir einstökum ríkjum.
Því telja íslensk stjórnvöld fýsilegt að sam-
ræma skuldbindingar sínar á heimsvísu við
loftslagsreglur á evrópska efnahagssvæðinu.
Þá er með þessu tryggt að íslenskt atvinnu-
líf búi við sambærilegar reglur og gilda á
Evrópska efnahagssvæðinu.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að aukið verið
við framkvæmdir í skógrækt og landgræðslu
á árinu með nýju fjárframlagi ríkisins sem
skipt verðurjafntá milli greinanna tveggja.
f tengslum við fjárlagavinnu 2016 hefur,
umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnt í
ríkisstjórn tillögur um að auka myndarlega
við þessi framlög á næstu árum.
Þessi auknu framlög til skógræktar og
landgræðslu miða að því að auka bindingu
kolefnis úr andrúmslofti í gróður og jarðveg,
bæta og endurheimta röskuð vistkerfi, efla
dreifðar byggðir og skapa atvinnutækifæri
á landsbyggðinni. Áhrifin koma þegarfram
með aukinni framleiðslu skógarplantna og
vinnu við skógræktar- og landgræðsluverk-
efni og til framtíðar með stækkandi skógar-
og gróðurauðlind.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur
mælt fyrir frumvarpi sem tekur á skipulagi,
Á kjörtímabilinu var lög áhersla á
að ferill rammaáætlunar fengi að
halda áfram eins og gert var ráð
fyrir. Verkefnisstjórn rammaáætlunar
hefur skilað niðurstöðum um 28 kosti
sem eru nú til umfjöllunará Alþingi.
Rammaáætlun er ætlað að vera
málamiðlun um landsvæði sem eru
tekin undirorkunýtingu annarsvegar
og sett í vernd hinsvegar.
fjármögnun og langtímahugsun fyrir upp-
byggingu innviða á ferðamannasvæðum til
verndar náttúrunni og menningarminjum. I
fyrsta sinn hér á landi er unnið að heildstæðri
áætlun sem varða þessi mál og nær yfir allt
landið. Heildstætt skipulag, skýr stefnu-
mörkun og kortlagning yfir vandamálin á
ferðamannastöðum hefur skort hér á landi.
Dæmi um verkefni eru hvar á að leggja
göngustíga eða hvar á að setja útsýnispalla
eða hvar væri hægt að búa til nýja ferða-
mannastaði til að dreifa umferðinni.
í nýsamþykktri Landskipulagsáætlun er
langtímahugsun höfð að leiðarljósi, sem
miðar að því að setja af stað stefnumótandi
verkefni um land allt. Dæmi um verkefni sem
eru að fara af stað, t.d. hvernig við viljum
skipulegga vegi um hálendi landsins, hvernig
og hvar á nýting að vera á strandsvæðum,
hvar viljum við hafa vindmyllur eða flokka
landbúnaðarland.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið vann
að frumvarpi til breytinga á lögum um
náttúruvernd. Markmiðið með endurskoðun
laganna var að skýra betur framkvæmd
þeirra og ná fram betri samstöðu um efni
þeirra. Skýrsla, fyrsta sinna tegundar hér á
landi, verður kynnt á næstunni, en þar eru
náttúruauðlindir kortlagðar hver af annarri
og viðmið þeirra um sjálfbæra nýtingu.
Hugmyndin er síðan að gera upplýsingarnar
aðgengilegar þannig að ekki sé gengið á
auðlindina eða framleiðslumöguleikar tak-
markaðir.
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 41