Þjóðmál - 01.09.2016, Side 9

Þjóðmál - 01.09.2016, Side 9
Aðeins níu dagar liðu frá formlegu framboði Sigurðar Inga þartil hann sigraði Sigmund Davíð í forn- mannskjöri sunnudaginn 2. október í Háskólabíói. Hann var kjörinn formaður Framsóknarflokksins með 370 atkvæðum, 52,7% greiddra atkvæða. Sigmundur Davíð hlaut 329 atkvæði 46,8% greiddra atkvæða. Forsíða Fréttabtaðsins með dramatískri ijós- mynd Antons Brink: Sigmundur Davíð yftrgefur flokksþing Framsóknarfiokksins, eftirað tilkynnt hafði verið að hann hefði ekki náð endurkjöri. gerður útlægur en sneri aftur og laut loks í lægra haldi við Waterloo. III. Sigurður Ingi greindi ekki frá formannsfram- boði sínu fyrr en föstudaginn 23. septem- ber. Valdi hann daginn til þess að ekki yrði óeðlileg spenna í loftinu á kjördæmaþingi flokksins í suðurkjördæmi daginn eftir. Þar gaf hann kost á sér í fyrsta sæti listans og hlaut 100% atkvæða. f viðtali við Vísi sagði hann ákvörðunina hafa verið sér erfiða þrátt fyrir ólgu innan flokksins um forustuna og formanninn. Hann hefði orðið fyrir þrýstingi og áskorunum og þætti sér„eðlilegast að hleypa þessari ólgu út með þeim lýðræðislega hætti að setja það í hendurnar á flokksmönnum á flokksþingi". Hann gengi ekki á bak orða sinna við SDG með framboði sínu, hann hefði lagt sig mikið fram um að verja SDG„og skapa honum svigrúm og að koma í veg fyrir að það yrðu fylkingar innan Framsóknarflokksins". Það hefði tekist vel, ekki hefði verið sjálfgefið að búa til þá stöðu að þingið og ríkisstjórnin gætu„klárað mörg og mikil- væg mál sem skipta máli fyrir land og þjóð". Síðustu vikur hefði „kristallast" að ekki væri „samstaða innan flokksins um formanninn". Aðeins níu dagar liðu frá formlegu fram- boði Sigurðar Inga þartil hann sigraði Sigmund Davíð í formannskjöri sunnudaginn 2. október í Háskólabíói. Hann var kjörinn formaður Framsóknarflokksins með 370 atkvæðum, 52,7% greiddra atkvæða. Sig- mundur Davíð hlaut 329 atkvæði 46,8% greiddra atkvæða. Eygló Harðardóttir, fráfarandi ritari flokksins, dró framboð sitt til varaformanns til baka. Lilja D. Alfreðsdóttir utanríkisráðherra var kjörin varaformaður með 392 atkvæðum eða 95,8% af 402 gildum atkvæðum í kosningunni. Á alla kvarða sýnir Sigurður Ingi verulegan pólitískan styrk. Sigmundur Davíð yfirgaf flokksþingið á meðan Sigurður Ingi flutti þakkarræðu sína og sinnti ekki ósk nýkjörins ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 7

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.