Þjóðmál - 01.09.2016, Page 17

Þjóðmál - 01.09.2016, Page 17
að deila út fjármunum úr sameiginlegum sjóðum hafa sterkan hvata til þess að gera það í síauknum mæli, sér í lagi þegar stutt er í kosningar. Hagsmunir skattgreiðenda eru jafnframt dreifðir og léttvægir fyrir hvern og einn og sjá þeir því ekki mikinn hag í því að þindast samtökum um að þerjast gegn auknum ríkisafskiptum, á meðan hagsmunir hinna fáu sem eiga sérhagsmuna að gæta og njóta góðs af ríkisafskiptunum eru miklir og þess virði að þerjast fyrir. Stjórnmálamenn vilja auðvitað forðast það að fá slíka sérhags- munahópa upp á móti sér. Afleiðingin verður sú að þeir leyfa ríkinu að þenjast út, án nokk- urrar mótspyrnu. Á sama hátt er oft sagt að frelsið glatist sjaldnast í einu lagi, heldur hægt og í smáum skrefum. Leiðin frá frelsi til ánauðar saman- stendur af mörgum litlum skrefum sem öll virðast gerð í göfugum tilgangi, þó svo að fáir sætti sig við áfangastaðinn. Af þessum ástæðum þarf frjálslynt fólk ávallt að vera á varðbergi þegar viðraðar eru hugmyndir um aukin afskipti og útgjöld hins opinbera, sama hversu smávægilegar þær kunna að hljóma. Markaðurinn er ekki fullkominn - ríkið því síður Talsmenn ríkisafskipta halda því statt og stöðugt fram að markaðurinn sé ekki full- kominn. Ríkið þurfi því að láta til sín taka og laga þá„bresti" sem þareraðfinna. Það er vitaskuld rétt að markaðurinn er ekki fullkominn, rétt eins og önnur mannanna verk, en ríkisvaldið er að sama skapi fjarri því að vera fullkomið og raunar mun fjærri því en markaðurinn. Því er oft haldið fram að um leið og lög og reglugerðir hafa verið settar hverfi allar meinsemdir markaðarins eins og dögg fyrir sólu en kostir hans haldist undir tryggri leiðsögn velviljaðra embættis- manna. Lausnin sé einfaldlega að sníða agnúana af markaðinum með opinberum afskiptum. En jafnvel þótt embættismenn séu alliraf vilja gerðirtil þess að vinna að almannahagsmunum og láta ekki undan þrýstingi sérhagsmunaafla, þá skortir þá það aðhald sem frjáls samkeppni á frjálsum markaði veitir mönnum. Hvatarnir eru ekki þeir sömu í ríkisrekstri og einkarekstri. Frjáls markaður byggist á tilraunastarfsemi. Austur- ríski hagfræðingurinn Joseph A. Schumpeter lýsti því sem svo að þar færi fram það sem hann kallaði„skapandi eyðilegging" þar sem fyrirtæki færu reglulega í gjaldþrot og ný tækju við. Það sem væri skapað væri ný tækni, nýjar aðferðir og nýjar hugmyndir. Það sem væri eyðilagt væri það gamla. Fyrirtæki geta auðvitað farið illa að ráði sínu og endað í gjaldþroti. Það er eðlilegt í öllum fyrirtækjarekstri. Vonin um hagnað drífur menn áfram og gefurtil kynna að reksturinn sé arðbær, að spurn sé eftir þeirri vöru eða þjónustu sem boðið er upp á, en tapið bendir ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 15

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.