Þjóðmál - 01.09.2016, Side 37

Þjóðmál - 01.09.2016, Side 37
Auknu fjármagni verður veitt til heiibrigðismáia og breytingar gerðar íþeim tilgangi að auka skilvirkni íkerfmu. Þá er stefnt að aukinni samvinnu heiibrigðisstofnana og markvissari verkaskiptinu auk þess sem ísienska heiibrigðiskerftnu er ætlað að verða enn betur samkeppnishæft við það sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Loks hefur verið settur á fót vinnuhópur um eftirlitsstofnanir sem hefur verið að skoða þær sérstaklega með hagræði, samræmi og skilvirkni eftirlits að leiðarljósi. Ríkisstjórnin hefur einnig samþykkt, að tillögu forsætisráðherra, að fela forsætis- ráðuneytinu að undirbúa stofnun stefnuráðs innan Stjórnarráðs íslands. Stefnuráðið hefur það hlutverk að vera samhæfingar- og samráðsvettvangur innan stjórnsýslunnartil að efla og bæta getu hennar til stefnumótun- ar og áætlanagerðar. Hlutverk stefnuráðs verður, að móta viðmið fyrir stefnumótun og áætlanagerð innan Stjórnarráðsins, að efla og samhæfa vinnubrögð ráðuneyta með fræðslu, ráðgjöf og tilmælum og að leiðbeina varðandi samspil við fjármagn og lagafrum- vörp. Heilbrigðis- og velferðarmál Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu var stöðvaður með fyrstu fjárlögum ríkisstjórnar- innar. í kjölfarið var blásið til sóknar í heilbrigðis- og velferðarmálum eftir lang- varandi niðurskurðartímabil. ífjárlögum ríkisstjórnarinnar hefur fé til heilbrigðismála verið aukið verulega. Þar ber hæst innspýting til Landspítala, í rekstrargrunn, viðhald og til tækjakaupa. Árlegt fé til tækjakaupa á spítalanum hefur verið aukið og rekstrarstaða spítalans batnað um leið og gengið hefur verið frá samningum við heilbrigðisstéttir. Framkvæmdir við nýjan Landspítala hafa verið tímasettar og í fyrsta skipti settar á fjárlög. Um leið er hafin markviss endurnýjun tækjabúnaðar í heilbrigðiskerfinu, en hvoru tveggja er ætlað að bæta starfsaðstöðu heil- brigðisstarfsfólks og þjónustu við almenn- ing. Um leið hefur verið unnið að því lækka greiðsluþátttöku einstaklinga með frum- varpi heilbrigðisráðherra um nýtt greiðslu- þátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu. Lögin koma til framkvæmda 1. febrúar 2017. Liður í því að lækka greiðsluþátttöku er að engar gjaldskrárhækkanir urðu um síðustu áramót í heilbrigðiskerfinu. Auknu fjármagni verður veitt til heil- brigðismála og breytingar gerðar í þeim tilgangi að auka skilvirkni í kerfinu. Þá er stefnt að aukinni samvinnu heilbrigðisstofn- ana og markvissari verkaskiptinu auk þess sem íslenska heilbrigðiskerfinu er ætlað að verða enn betur samkeppnishæft við það sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Aukin framlög endurspegla þær áherslur í heilbrigðismálum sem ríkisstjórnin hefur samþykkt og falla undir verkefni áætlunar- ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 35

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.