Þjóðmál - 01.09.2016, Page 47
kjósendur um að hrunið hafi líka verið þeim
að kenna.
Vantraustið varð til þess að kjósendur hófu
örvæntingafulla leitað betri stjórnmálamönn-
um og þá skipti engu hvaða reynslu menn
höfðu eða hvort þeir gátu yfirleitt stjórnað af
viti. Fjarlægðin gerði það að verkum að flestir
töldu stjórnmálamenn aðra dýrategund en
hinn venjulega mann. Markmiðið var einfalt;
finna fólk sem hafði aldrei komið nálægt
stjórnmálum og ekki„svikið" - heiðarlegan
og góðan einstakling. Þá birtist Jón Gnarr
eins og þruma úr heiðskýru lofti. Hann
sagðist ekki vera stjórnmálamaður, lofaði
hátíðlega að svíkja öll loforðin sín og hann
stóð við það, sveik þau öll og telja má hann í
hópi orðheldnustu stjórnmálamanna sögunnar.
Hinir örvæntingafullu kjósendur tóku
ekkert eftir því þótt borgarstjórinn segði að
frelsarinn hafi líklega verið„hommi" því hann
var alltaf að faðma og knúsa karlmenn. Þeim
þótti flott þegar Jón Gnarr þorgarstjóri mætti
í viðtöl og kvaðst ekki hafa hugmynd um
hvað væri í gangi í borgarmálunum. Það þótti
bara nokkuð gott þegar borgarstjórinn sagði
í viðtali við Gísla Martein að hann hafi ekki
haft neina stefnu ífjármálum borgarinnar
þegar hann óskaði eftir umboði til að stjórna
henni. Færi einhver með bíl á verkstæði til
manns sem kynni ekki að mæla olíuna? Nei
- en svona tókst stjórnmálamönnum með
klúðri að rugla kjósendur, þeir gleymdu að
reglulegt samtal skapar traust.
í kjölfar Jóns Gnarr og Besta flokksins
komu Píaratar sem farið hafa með himin-
skautum í skoðanakönnunum. Píratar höfðu
enga hugmyndafræði sem miðar að ábyrgri
efnahagsstjórn eða reynslu af að stjórna
eða byggja upp traustan reksturfyrirtækja í
opinberri eða einkaeign. Eina sem fólk dáðist
að var sú staðreynd að þeir hafa„aldrei svikið
kosningaloforð" - þess vegna ætti að gefa
þeim tækifæri til að sanna sig.
Píratar heimta að tillögur stjórnlagaráðs
verði að nýrri stjórnarskrá, að ráðherrar sitji
ekki á þingi og að allir fái þorgaða fram-
færslu fyrir að gera ekki neitt. Þeim þykir það
óttalega gamaldags að vinna fyrir peningum.
Þessir langþreyttu kjósendur -
sem treysta ekki lengur„f]órflokknum"
- eru ekkert að spekúlera í hvað
Píaratar eru að segja í raun og fáir
„hefðbundnir stjórnmálamenn" eða
fræðimenn taka til máls.
Þessir langþreyttu kjósendur - sem treysta
ekki lengur„fjórflokknum" eru ekkert að
spekúlera í hvað Píaratar eru að segja í raun
og fáir„hefðbundnir stjórnmálamenn" eða
fræðimenn taka til máls. Ný stjórnarskrá
byggð á tillögum stjórnlagaráðs hefur engin
mælanleg áhrif til góðs.Tillögurnareru ekki
alslæmar en lykta mjög af almennum lögum
og það er slæmt. Svo tekur það dómstóla
langan tíma að aðlagast nýrri stjórnarskrá frá
grunni og löggjafann að sjálfsögðu líka - það
kostarað sjálfsögðu mikla peninga.
Að ráðherrar sitji ekki á þingi er alger mark-
leysa og flækir málin ef eitthvað er. Ekkert
bendir til annars en flokkar sem ná meirihluta
í kosningum velji ráðherra til að framfylgja
sinni stefnu. Flækjan við það birtist m.a. í
því að stjórnmálamenn þurfa að leiðbeina
ráðherrunum sem þeir völdu í stað þess að
ráðherra úr þeirra röðum vinni verkin - þeir
hafa stefnuna en ekki endilega þeir ráðherrar
sem þeir ráða.
„Borgaralaun" er arfavitlausasta hugmynd
sem stjórnmálaflokkur hefur borið á borð
fyrir kjósendur - þau munu rústa öllu því
sem byggir einstaklinga og þjóðir upp og
ganga í berhögg við eitt af elstu lögmálum
tilverunnar:„eins og maðurinn sáir mun hann
uppskera."
Svo hefur Birgitta Jónsdóttir sem leiðir
listann í Reykjavík sagt að hún vilji alls
ekki verða forsætisráðherra og það þykir
bara fiott. En stjórnmálaleiðtogi sem hefur
ekki kjark til að sanna sig í æðsta embætti
þjóðarinnar er að sjálfsögðu vita gagnslaus.
Þetta er allt á ábyrgð„fjórflokksins" og þar
bera þeir allir jafna sök.Vegna þessað þeir
hafa ekki náð að tala sig í hjarta þjóðarinnar
á tungumáli sem hún skilur, þá treysta
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 45