Þjóðmál - 01.09.2016, Side 49

Þjóðmál - 01.09.2016, Side 49
ORKUMÁL Bjarni Jónsson Svarta gullið kvatt Ágrip orkuumræðunnar undanfarið: Skuldbindingarfyrir íslands hönd á Parísar- ráðstefnunni í desember 2015 um viðbrögð jarðarbúa við hlýnun jarðar af mannavöldum verður að taka alvarlega, og þær hljóta að marka orkustefnu landsins fram til 2030 hið minnsta, þegar landsmenn eiga að hafa dregið úr losun sinni á gróðurhúsalofttegund- um um 40% m.v. árið 1990. í útreikningum á þessari losun er stóriðju, millilandaflugi og millilandasiglingum sleppt, því að þessar greinar falla undir sameiginleg markmið EES- landanna. Ofangreint markmið er metnaðarfullt, og því verður ekki með góðu móti unnt að ná, nema með stórfelldri eflingu skógræktarog land- græðslu til mótvægis við losun gróðurhúsa- lofttegunda, og með því að draga úr notkun svarta gullsins, jarðolíunnar, og afurða þess. Sjálfbærar orkulindir verða að hlaupa í skarðið, því að nútíma þjóðfélag er háð mikilli orkunotkun. Verðugt lokamarkmið er að leysa alla olíubrennslu af hólmi 2050. Þar kemur rafmagnið til skjalanna með einum eða öðrum hætti, hvort sem það verður nýtt beinttil að knýja hin margvíslegu tæki, eða það verður nýtt til að framleiða eldsneyti á vélbúnað. Lögmál rafmagnsfræðinnar voru fyrst leidd út árið 1831 af enska vísindamanninum Michael Faraday, og einum mannsaldri síðar, um 1860, hófst hagnýting þess í Evrópu og í Norður-Ameríku. Hagnýting þess breiddist hratt út um heiminn í kjölfarið, enda um eina byltingarkenndustu uppgötvun manns- andans að ræða fyrir daglegt líf manna. Til íslands barst þessi tækni ekki almenni- lega fyrr en á Heimastjórnarárunum á fyrsta áratugi 20. aldarinnar, enda átti annars konar atvinnubylting sér stað á íslandi 1860-1900, þar sem var vélvæðing í landi, t.d. í hvalstöðvunum, og á sjó með vélvæðingu þilskipaútgerðar. Árið 1876 markaði tímamót í atvinnusögunni hérlendis, því að það ár var lokaár landbúnaðarins sem stærstu útflutningsatvinnugreinarinnar, en við tók sjávarútvegurinn, sem hélt því sæti í um 130 ár, er iðnaðurinn tók forystu í vöruútflutningi, og ferðaþjónustan er frá 2015 í toppsæti gjaldeyrisöflunar.11 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 47

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.