Þjóðmál - 01.09.2016, Side 53

Þjóðmál - 01.09.2016, Side 53
þau um sjálf og kosta hana alfarið, enda reka þau eigin rafveitu. Algengt var árið 2015, að heimili greiddu um 13,3 kr/kWh fyrir raforkuna án 24 % virðis- aukaskatts (álfyrirtækin fá innskatt á móti), og dreifingarþátturinn nam 57 % af þessu verði. Sambærilegt orkuverð heimilanna við ofangreint verð til álveranna var þannig 5,7 kr/kWh. Raunhlutfallið = 3,4/5,7 = 0,6 = 60%, sem staðfestir, að álfyrirtækin eru að greiða ríflega sinn skerf (48%) af kostnaðinum í íslenzka raforkukerfinu og munu gera það að óbreyttu verði til sín upp að verðinu 7,0 kr/kWh til almennings. Taxtar þar fyrir ofan eru óréttlátir að óbreyttum forsendum. Síðan árið 2010, er nýr orkusamningur var undirritaðurá milli RioTinto Alcan og Landsvirkjunar, hefur að hennar hálfu því mjög verið haldið á lofti, að hún gæti aukið verulega við hagnað sinn með nýrri tegund viðskipta, sem væru viðskipti við Englendinga um sölu og kaup á raforku um sæstreng á milli íslands og Skotlands í báðar áttir. Menn hafa skipzt í tvö horn hérlendis um það, hvort þessi viðskiptahugmynd Landsvirkjunar- manna væri raunhæf eður ei. Vafi hefur ríkt um þetta vegna upplýsingaskorts, en nokkuð var bætt úr honum 12. júlí 20163)að hálfu iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og er þessi sæstrengur viðfangsefni næsta kafla. Aflstrengur á milli íslands og Bretlands Ráðherranum barst skýrsla„Verkefnisstjórnar sæstrengs" í júní 20163), hér eftir nefnd Skýrslan, en af einhverjum ástæðum dró hún birtingu skýrslunnar í u.þ.b. mánuð. Hin sögulega„Brexit" þjóðaratkvæðagreiðsla var á Bretlandi 23. júní 2016, en þrátt fyrir að margra mati óvænta niðurstöðu hennar heldur skýrslan fullu gildi sínu. Árið 2010 birti Landsvirkjun spá sína um þróun raforkuverðs í Evrópu. Samkvæmt henni átti raforkuverð þar að vera orðið meira en tvöfalt hærra nú, árið 2016, en reyndin er, og jafnframt lýsti Landsvirkjun því yfir, að hún stefndi að sömu hlutfallshækkun raforkuverðs hérlendis og í Evrópu. Hér var um kúvendingu stefnumörkunar um verðlagn- ingu að hálfu ríkisfyrirtækisins að ræða, sem afar litla athygli vakti, enda takmörkuð umræða um hana. Fram að setningu nýrra raforkulaga 2003 í samræmi við tilskipun ESB um fjórgreiningu raforkugeirans hafði stefna Landsvirkjunar verið, að raunverð raforku til almennings skyldi lækka á hverju ári, og það hafði gengið eftir. Árið 2010 voru nýir herrar og frúr setzt í valdastólana, bæði í Stjórnarráðinu og í háhýsi Landsvirkjunar við Háaleitisbraut, með öðru vísi afstöðu til grunnhlutverks Landsvirkjunar en ríkjandi hafði verið frá stofnun fyrirtækisins, en ekki hefur þó bólað á viðleitni fyrirtækisins, sem er markaðsráðandi á fslandi, til að láta þróun almenns raforkuverðs á íslandi fylgja slíkri þróun í Evrópu. Er mjög gagnrýnivert, að fulltrúar eigenda Landsvirkjunar, Alþingis- menn, skuli ekki hafa gefið þessari einkenni- legu verðlagsstefnu stjórnarfyrirtækisins meiri gaum á sínum vettvangi. Landsvirkjun virðist skorta aðhald. Ráðið til að þrýsta raforkuverðinu hér- lendis upp var að halda því á lofti, að markaðsaðstæður mundu gjörbreytast Landsvirkjun í vil með tilkomu tengingar á milli raforkukerfa íslands og Englands, sem væri nú tæknilega möguleg og mundi bjóða upp á mun arðsamari orkusölu fyrir Lands- virkjun en henni gæfist kostur á innanlands. Með þessum áróðri var gefið í skyn, að með tengingunni mundi verðlag raforku á íslandi óhjákvæmilega hækka til samræmis við enska raforkumarkaðinn41, og gagnvart stóriðjunni var þannig látið í veðri vaka, að afsetning allrar tiltækrar orku í landinu yrði engum vandkvæðum háð, hvað sem í skærist hér innanlands. Hvað skyldi Samkeppnis- stofnun kalla slíka hegðun markaðsráðandi aðila? Markaðsmisnotkun? Englendingar tala um„market manipulation" í þessu samhengi. Allt voru þetta þó Potemkín-tjöld fyrirtéðan sæstreng til af afvegaleiða orkunýtingar- umræðuna í landinu, því að ekkert handfast vará bakvið þessa loftkastala talsmanna Landsvirkjunar. Landsvirkjun hefurhaldið uppi þessum Pótemkín-tjöldum með því ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016 51

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.