Þjóðmál - 01.09.2016, Page 64

Þjóðmál - 01.09.2016, Page 64
Bjarni Jónsson bendir á að eigi síðar en á árabilinu 2030-2040 verði það tæknilega kieift og fjárhagslega hagkvæmtað leysa risavélar skipanna með sína jarðefnaeldsneytisbrennslu afhólmi með öðrum orkugjöfum, sem kalla má sjálfbæra, jafnvel með rafhreyflum og orku úr nýrri gerð rafgeyma. á herskipi austur af Nýfundnalandi. Um þetta leyti varð búsetubylting á íslandi, og íslend- ingar voru að berjast til bjargálna í þéttbýli eftir kröpp kjör í sveitum um aldir. Þá tóku þeirfrumkvæði í nýtingu jarðhita, sem er merkilegt framtak. Þarf ekki að orðlengja, að vatnsveitan, fráveita til sjávar, rafveitan og hitaveitan, hafa haft byltingarkennd áhrif til hins betra á lífskjör og heilsufar, þ.e. lífsgæði landsmanna. Þannig hefur þróun orkunýtingar á íslandi orðið með öðrum og sjálfbærari hætti en víðast hvar annars staðar, þótt hún væri á seinni skipunum. Skipting nýtingarfrum- orkugjafa á íslandi á milli jarðefnaeldsneytis og sjálfbærra orkulinda er í hlutföllunum 14% og 86%, sem er nokkurn veginn alveg öfugt við það, sem algengt er erlendis um þessar mundir. Nýting frumorkugjafa á íslandi skiptist þannig nokkurn veginn um þessar mundir: • Jarðhiti: • Vatnsorka: • Jarðolía: • Kol: 68%, aðallega lághiti til húshitunarog háhiti til raforkuvinnslu 18%, þar af yfir 4/5 ráðstafað með langtímasamningum 12%, flotaolía, svartolía, dísilolía, benzín, þotuelds- neyti o.fl. 2%, aðallega til notkunar í efnaferlum málmfram- leiðslunnar Kolum í iðnaðarframleiðslunni verður ekki útrýmt án byltingar í framleiðsluferlunum þar, sem ekki er útilokað, að verði á fyrri helmingi 21. aldarinnar, t.d. með s.k. eðal- skautum fyrir rafgreiningu súráls, sem er aðal- 62 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.