Morgunblaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2021 Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VILHJÁLMUR, ÉG ER FARINN AÐ STÓREFAST UM FÆRNI ÞÍNA SEM ENDURSKOÐANDI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að kunna að meta hvað mamma leggur mikið á sig. HEI, MJÓNI! ÞÚ LÍTUR FRÁBÆR- LEGA ÚT! HVERNIG (FLISS) FERÐU AÐ ÞESSU? ÉG HATA KALDHÆÐNAR VIGTIR! ÉG SÉ AÐ ÓLIN ER Á SNATA … ÆTLARÐU MEÐ HANN Í GÖNGUTÚR? ÞESS ÞARF EKKI. ÉG ER BÚINN AÐ KENNA HONUM NÝTT TRIX! „ÞETTA SNÝST EKKI UM DÓRÓTHEU EÐA RAUÐU SKÓNA. ÉG ÞOLI BARA ALLS EKKI SÖNGLEIKI.“ Fjölskylda Eiginmaður Kristínar er Eiríkur Hjálmarsson, sérfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 9.11. 1964. Foreldrar hans voru hjónin Hjálmar Ólafsson, bæjarstóri í Kópavogi, síð- ar menntaskólakennari í Reykjavík og konrektor við Menntaskólann við Hamrahlíð, og Nanna Björnsdóttir meinatæknir, búsett í Kópavogi. Stjúpbörn Kristínar eru 1) Birna Kristín Eiríksdóttir, lyfjafræðingur í Gautaborg, f. 11.8. 1984, maki Benedikt Friðriksson lungnalæknir, f. 23.5. 1987. Þau eiga Ingibjörgu Önnu, f. 2012, Bergrós Þyrí, f. 2015, og Sigrúnu Hönnu, f. 2019. 2) Orri Eiríksson, hugmyndasmiður hjá Bakland Creative, f. 13.3. 1990, maki Una Haraldsdóttir, BA í arkitektúr. Þau eiga Emblu, f. 2016, og Örk, f. 2019, d. 2019. Börn Kristínar og Ei- ríks eru Valur Páll, meistaranemi og íþróttafréttamaður, f. 4.2. 1994, í sambúð með Björnfríði S. Björns- dóttur, þroskaþjálfa og nema í op- inberri stjórnsýslu, f. 30.12. 1996. Þröstur, f. 4.2. 1994, d. 5.2. 1994, og Hrafnhildur Erla, nemi í mannfræði við HÍ, f. 22.2. 1996. Systkini Kristínar eru Jónína, efnafræðingur og menntaskólakenn- ari, f. 22.2. 1959; Snorri, sérfræð- ingur hjá Ferðamálastofu og tromp- etleikari, f. 6.2. 1963, og Eyrún, brjóstaskurðlæknir á Landspítala, f. 6.7. 1976, öll búsett í Reykjavík. Foreldrar Kristínar eru hjónin Valur Páll Þórðarson skrif- stofumaður, f. 6.2 1940, d. 20.8. 2015, og Erla Jóhanna Þórðardóttir fé- lagsráðgjafi, f. 19.2 1938, búsett í Reykjavík. Kristín Valsdóttir Kristín Þorláksdóttir húsmóðir á Meiðastöðum, Gerðahr., Gull. Þorsteinn Gíslason útvegsbóndi á Meiðastöðum, Gerðahr., Gull.Þórður Þorsteinsson skipstjóri í Reykjavík, frá Meiðastöðum í Garði Kristín Pálsdóttir húsfreyja í Reykjavík, frá Nesi í Selvogi Valur Páll Þórðarson skrifstofumaður, búsettur í Reykjavík Valgerður Hinriksdóttir húsfreyja á Eyrarbakka og Nesi í Selvogi Páll Grímsson útvegsbóndi, formaður og hreppstjóri á Óseyrarnesi, Nesi í Selvogi Guðríður Þórðardóttir húsmóðir í Ráðagerði, Seltjarnarneshr., Kjós. Oddur Jónsson skipstjóri og síðar hafnsögumaður í Reykjavík Þórður Oddsson læknir á Þórshöfn, Kleppjárnsreykjum og Reykjavík, frá Ráðagerði á Seltjarnarnesi Guðný Sigurbjörnsdóttir Fanndal hjúkrunarkona og píanókennari á Siglufirði, ættuð frá Seyðisfirði Jóhanna Guðrún Jónasdóttir húsfreyja á Seyðisfirði Sigurbjörn Stefánsson fiskkaupmaður á Seyðisfirði síðar kaupmaður í Sandgerði Úr frændgarði Kristínar Valsdóttur Erla Jóhanna Þórðardóttir félagsráðgjafi í Reykjavík Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Deila milli manna er. Mikið rok um grundir fer. Í þessum leik er hlaupið hratt. Í helvíti mun loga glatt. Guðrún B. svarar: Oft í bál fór milli meyja. Mörg í bálviðri lömb deyja. Þær tróðu bál með sveinum saman. Og Satani fannst bálið gaman. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Bálið milli manna er. Mikið bál um grundir fer. Í bálinu er brunað hratt. Bál í neðra logar glatt. Eysteinn Pétursson svarar: Hér fór allt í bál og brand. Bálhvasst var um Norðurland. Í leik um bál var hlaupið hratt. Í helvíti bál logar glatt. Guðmundur skýrir gátuna þann- ig: Deila milli manna er bál. Mikið bál er stormur sá. Ég leik í báli af lífi og sál. Logar bálið kölska hjá. Þá er limra: Hún Dómhildur digur er og daglega í ræktina fer, þá er nú best, ef hún bálreið sést að biðja fyrir sér. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Vikur líða ansi ótt, einnig mánuðirnir fljótt, öldur rísa ört á mar, en ekki þrjóta gáturnar: x Í þeim geng ég alla daga. Eru máski í skónum þínum. Útslitnar ég í þær staga. Á þeim ligg á beði mínum. Helgi R. Einarsson var að koma úr sundi þegar hann leysti gátuna og þar varð þessi til: Berfættur Ein er agnarsmá ofan frá að sjá ögn á ská öðrum hjá, ég á við litlutá. Gömul vísa að lokum: Á fangalásinn lýsi ber leikur sviti af brúnum; hjá sýslumanni okkar er Eiríkur á Brúnum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Oft verður bál af litlum neista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.