Morgunblaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2021
Mjólkurbikar kvenna
Selfoss – Þróttur R................................... 1:4
Fylkir – FH............................................... 1:4
Breiðablik – Afturelding.......................... 5:0
Lengjudeild karla
Kórdrengir – Grindavík........................... 1:1
Staðan:
Fram 7 7 0 0 24:4 21
Grindavík 8 5 1 2 15:13 16
Kórdrengir 8 4 3 1 13:10 15
ÍBV 7 4 1 2 13:8 13
Fjölnir 7 4 1 2 10:6 13
Vestri 7 4 0 3 13:14 12
Grótta 7 2 2 3 16:14 8
Þór 7 2 1 4 13:15 7
Afturelding 7 1 3 3 13:16 6
Selfoss 7 1 2 4 10:18 5
Þróttur R. 7 1 1 5 11:19 4
Víkingur Ó. 7 0 1 6 7:21 1
2. deild karla
KV – Reynir S........................................... 4:2
Staðan:
KV 8 4 4 0 18:11 16
Reynir S. 8 4 1 3 18:15 13
Þróttur V. 7 3 3 1 16:10 12
ÍR 8 3 3 2 13:12 12
Njarðvík 7 2 5 0 12:8 11
KF 7 3 2 2 10:9 11
Völsungur 7 3 1 3 16:16 10
Haukar 7 2 3 2 14:13 9
Leiknir F. 7 3 0 4 11:13 9
Magni 7 1 3 3 14:18 6
Fjarðabyggð 7 0 4 3 3:12 4
Kári 8 0 3 5 10:18 3
3. deild karla
ÍH – KFG .................................................. 2:2
Staðan:
Höttur/Huginn 9 7 1 1 15:10 22
Ægir 8 4 4 0 13:7 16
Augnablik 8 4 3 1 21:9 15
Elliði 8 5 0 3 21:10 15
KFG 8 4 3 1 12:7 15
Dalvík/Reynir 9 3 2 4 14:12 11
Sindri 8 2 3 3 13:15 9
Víðir 8 2 3 3 9:14 9
Einherji 8 2 1 5 11:19 7
Tindastóll 7 1 2 4 11:14 5
ÍH 9 0 5 4 11:21 5
KFS 8 1 1 6 8:21 4
Noregur
Lilleström – Rosenborg .......................... 2:0
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Sarpsborg – Viking ................................. 1:2
- Emil Pálsson lék fyrstu 78 mínúturnar
með Sarpsborg.
- Samúel Kári Friðjónsson var ekki á leik-
skýrslu hjá Viking.
Arna-Björnar – Sandviken..................... 1:1
- Guðbjörg Gunnarsdóttir var varamark-
vörður Arna-Björnar.
Staða efstu liða:
Molde 10 7 2 1 25:11 23
Bodø/Glimt 10 6 2 2 21:9 20
Vålerenga 10 4 4 2 17:13 16
Kristiansund 9 5 1 3 8:9 16
Viking 9 5 0 4 16:18 15
Lettland
Riga – Noah.............................................. 2:1
- Axel ÓskarAndrésson var ekki á leik-
skýrslu hjá Riga.
>;(//24)3;(
Úrslitakeppni karla
Fjórði úrslitaleikur:
Þór Þ. – Keflavík................................... 81:66
_ Þór Þ. sigraði 3:1 samtals og er Íslands-
meistari árið 2021.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, úrslit:
LA Clippers – Phoenix....................... 106:92
_ Staðan er 2:1 fyrir Phoenix.
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – KA .............................. S16
Kórinn: HK – Breiðablik ................... S19.15
Origo-völlur: Valur – Fylkir.............. S19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Extra-völlur: Fjölnir – Þór .................... L13
Jáverkvöllur: Selfoss – Víkingur Ó....... L14
Eimskipsv.: Þróttur R. – Afturelding... L14
Vivaldi-völlur: Grótta – Fram................ S12
Olísvöllur: Vestri – ÍBV.......................... S14
2. deild karla:
Vogaídýfuv.: Þróttur R. – Völsungur ... L14
Grenivíkurv.: Magni – Leiknir F .......... L14
Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – Haukar.... L14
Rafholtsvöllur: Njarðvík – KF .............. L16
3. deild karla:
Þorlákshafnarvöllur: Ægir – KFS........ L14
Fagrilundur: Augnablik – Elliði ............ S14
Sindravellir: Sindri – Einherji ............... S14
Sauðárkrókur: Tindastóll – Víðir .......... S18
2. deild kvenna:
Vopnafjörður: Einherji – Fram ............ L14
Hertz-völlur: ÍR – Hamrarnir............... L16
OnePlus-völlur: Álftanes – Völsungur.. L18
UM HELGINA!
Wales og Belgíu hafa kropið á hné
fyrir þeirra leiki, líka Skotland í eitt
skipti. Þessi táknræna tilvísun í
Black Lives Matter-hreyfinguna,
sem NFL-leikmaðurinn Colin Ka-
epernick ýtti af stað til að mótmæla
kynþáttahatri, minnir okkur á að öll
eigum við jafnan rétt og að brotið
er á þeim rétti aftur og aftur.
Minnihlutahópar eru ofsóttir um
allan heim.
Margir telja sig fá styrk af því að
útiloka einhvern þjóðfélagshóp og
lýsa honum á neikvæðan hátt. Það
er rangt og ónauðsynlegt. Ég þarf
ekki á óvini að halda til að þrífast.
Ég verð ekki sterkari með því að
útiloka aðra, heldur með samvinnu
við aðra. Þegar til lengri tíma er lit-
ið getur fótboltalið aðeins náð ár-
angri ef allir viðurkenna og meta
fjölbreytileikann í hópnum. Að
sjálfsögðu á þetta líka við um and-
stæðinginn. Í fótbolta er brot alltaf
brot, sama hver brýtur af sér.
Þetta er ekki popúlismi
Enska landsliðið hefur mátt þola
kynþáttahatur í mörgum útileikjum
á undanförnum árum. Búlgarar
beindu apahljóðum að Raheem
Sterling. Nú finnur enska liðið
styrk í því að krjúpa á hné. Gareth
Southgate útskýrði þýðingu þess í
opnu bréfi til þjóðar sinnar. „Þetta
er þeirra skylda,“ skrifaði enski
þjálfarinn um leikmenn sína, „að
halda áfram samtalinu við almenn-
ing um þætti eins og jafnræði, sam-
vinnu og kynþáttamisrétti“.
Þessi athöfn var gagnrýnd og
töluð niður af sumum. Íhaldssamir,
enskir stjórnmálamenn höfnuðu
henni, baulað var á krjúpandi Belg-
ana á völlunum í Búdapest og Pét-
ursborg, og fótboltaforystumenn
kölluðu þetta „popúlisma“. En
þetta tákn hefur unnið sér sess í
liðsíþróttum. Þetta er áhrifarík leið
til að fást við málefni sem allir
þekkja. Þetta er mikilvæg sameig-
inleg yfirlýsing um að húðlitur
skipti ekki máli. Um leið fær hver
einstaklingur styrk og vissu fyrir
því hverjum hann eða hún vill til-
heyra. Þessi athöfn getur því engan
veginn verið popúlismi.
UEFA gagnrýnt fyrir afstöðu
Annað tákn fjölbreytileikans
vakti mikla athygli í Evrópu, sér-
staklega í Þýskalandi. Borgar-
stjórinn í München vildi lýsa upp
leikvanginn í regnbogalitunum
daginn sem Þýskaland og Ung-
verjaland mættust, til að senda
skilaboð gegn hatri í garð samkyn-
hneigðra og ungversku löggjöfinni.
UEFA hafnaði þessu þar sem
skilaboðin beindust beint að
ákvörðun þingsins og braut því í
bága við reglur sambandsins um
hlutleysi gagnvart stjórnmálaskoð-
unum. Bannið var harðlega gagn-
rýnt, allt frá samfélagi samkyn-
hneigðra til íhaldssamra
stjórnmálaafla. Yfirmenn annarra
leikvanga í Þýskalandi brugðust við
þessu með því að lýsa sína velli upp
með regnbogalitunum þetta kvöld
til að sýna ofsóttum minnihlutahópi
samstöðu.
Mótshald á ábyrgan hátt
Að lokum er Evrópa enn að glíma
við þá áskorun sem kórónuveiran
hefur verið okkur öllum. Nú er það
delta-afbrigðið. Hvernig er hægt að
halda Evrópukeppnina á ábyrgan
hátt? Hvernig styðja hin ýmsu lönd
hvert annað? Eins og allir vita þá
stöðva engin landamæri veiruna,
aðeins skynsamlegar ákvarðanir. Á
alþjóðavísu er það ekki alltaf átaka-
laust.
Mál Eriksen hefur sýnt um hvað
samstaða snýst. Hún er menning í
sinni bestu mynd. Danska liðið er
samstilltara en nokkru sinni fyrr og
tengsl þess við þjóð sína eru aug-
ljóslega betri. En þeirra samstaða
beinist ekki gegn neinum. Og mót-
herjar Dana standa með þeim.
Að sjálfsögðu er Evrópukeppnin
stórskemmtileg og við sjáum mörg
önnur frábær lið. En ef þetta geng-
ur ekki upp, þá gengur það ekki
upp. Ef allt væri galopnað væru það
röng skilaboð, að mínu mati. Frá
viku til viku, frá degi til dags, þarf
að skoða tölur og önnur viðmið.
Hvar úrslitaleikurinn fari fram, í
London eins og áætlað er eða ein-
hvers staðar annars staðar, var til
umræðu en það skiptir ekki öllu
máli. Það eina sem skiptir máli er
hvar sé öruggt að halda hann.
Veiran hefur valdið öllum þjóðum
þjáningum, sumum snemma, öðrum
seint, sumum minna, öðrum meira.
„Heilsa almennings verður að vera í
forgangi,“ segir Boris Johnson. Í
Moskvu er búið að loka svæði
stuðningsfólks. Það er ljóst að sömu
reglur gilda ekki alls staðar. Evr-
ópukeppnin sýnir okkur að að-
stæður í Evrópu eru mismunandi,
og það þarf meira að segja stöðugt
að endurmeta fótboltamót. Þannig
virkar lýðræðið.
Samstaða sem
beinist ekki
gegn öðrum
- Eriksen endurspeglar Evrópusálina
AFP
Parken Samstaðan með Christian Eriksen var algjör, alls staðar.
Kvennalið Selfoss í fótbolta hefur
fengið góðan liðsauka fyrir seinni
hluta keppnistímabilsins en Krist-
rún Rut Antonsdóttir er komin aft-
ur til félagsins eftir að hafa verið í
atvinnumennsku erlendis undan-
farin ár. Kristrún, sem er 26 ára
miðjumaður, lék með Selfossi frá
2010 til 2018 en síðan með Chieti og
Roma á Ítalíu, Avaldsnes í Noregi,
BSF í Danmörku, Mallbacken í Sví-
þjóð og síðast með St. Pölten þar
sem hún varð austurrískur meistari
í vor og lék með liðinu í Meistara-
deild Evrópu.
Selfoss fær
góðan liðsauka
Ljósmynd/UMF Selfoss
Heim Kristrún Rut Antonsdóttir
varð austurrískur meistari í vor.
Darri Freyr Atlason er hættur
störfum sem þjálfari karlaliðs KR í
körfuknattleik en þetta staðfesti
hann í viðtali við mbl.is í gær. Hann
sagði þar að ástæðan væri miklar
annir í vinnu. Darri tók við KR-
liðinu sumarið 2020 en liðið endaði í
fimmta sæti úrvalsdeildarinnar í
vetur og féll út gegn Keflavík í und-
anúrslitum. Karfan.is segir að
Helgi Már Magnússon taki líklega
við þjálfun KR. Darri sagði við
mbl.is að hann hefði áhuga á að
vinna áfram að uppbyggingu körfu-
boltans í félaginu.
Darri er hættur
vegna vinnu
Morgunblaðið/Eggert
Hættur Darri Freyr Atlason stýrði
KR-ingum í eitt ár.
Philipp Lahm var fyrirliði
heimsmeistara Þýskalands
2014 og skrifar pistla um
knattspyrnu fyrir Morg-
unblaðið og fleiri fjölmiðla í
Evrópu í samvinnu við Oliver
Fritsch, íþróttaritstjóra Zeit
Online í Þýskalandi. Að þessu
sinni fjallar hann um EM en í
16-liða úrslitum helgarinnar
mætast þessi lið:
Wales – Danmörk............... L16
Ítalía – Austurríki.............. L19
Holland – Tékkland ........... S16
Belgía – Portúgal ............... S19
Pistlar frá
Philipp Lahm
1. deildarlið FH burstaði úrvals-
deildarlið Fylkis 4:1 þegar liðin
mættust í 8-liða úrslitum Mjólk-
urbikarsins í knattspyrnu í gær.
Þróttur vann frábæran 4:1 sigur á
Selfossi og Breiðablik sigraði Aftur-
eldingu 5:0. FH, Þróttur, Breiðablik
og Valur leika því í undanúrslitum.
Selma Dögg Björgvinsdóttir,
Brittney Lawrence, Sunneva Hrönn
Sigurvinsdóttir og Elín Björg Sím-
onardóttir komu FH í 4:0 áður en
Bryndís Arna Níelsdóttir minnkaði
muninn fyrir Fylki.
Selfoss er fjórum stigum fyrir of-
an Þrótt í Pepsí Max-deildinni og
stórsigur Þróttar kemur því frekar á
óvart en Selfoss komst yfir 1:0
snemma leiks en markið skoraði
Brenna Lovera. Lorena Baumann,
Katherine Cousins, Shaelan Brown
og Guðrún Gyða Haralds svöruðu
fyrir Þrótt.
Eins og við var að búast áttu Mos-
fellingar erfitt uppdráttar gegn Ís-
landsmeisturunum. Agla María Al-
bertsdóttir skoraði tvívegis en þær
Vigdís Edda Friðriksdóttir, Birta
Georgsdóttir, Þórdís Hrönn Sigfús-
dóttir sitt markið hver.
Morgunblaðið/Eggert
Bikarinn FH-ingar höfðu ástæðu
til að fagna úrslitunum í gær.
FH í undanúrslit eftir stórsigur á Fylki
MITT SJÓNARHORN
Philipp Lahm
@philipplahm
Evrópukeppni endurspeglar ávallt
líf okkar Evrópubúa. Í þessari
keppni hefur fjögur atriði borið
hæst að mínu mati. Þann 12. júní
sýndi heil heimsálfa samstöðu með
dönskum fótboltamanni. Það þurfti
að endurlífga Christian Eriksen á
vellinum. Samherjar hans, sem
slógu strax hring um hann á vell-
inum, vissu strax hvernig þeir ættu
að styðja hann við þessar erfiðu að-
stæður. Það var augljóst hversu
annt þeim var um friðhelgi hans á
þessari örlagastundu. Þetta var
gríðarlega tilfinningarík stund.
Samúð og samstaða allra á vell-
inum í Kaupmannahöfn, hvort sem
þeir voru Danir eða Finnar var
mikil, líka þeirra sem fylgdust með
úr fjarlægð og óttuðust um líf
Christians Eriksens. Næsti leikur
var stöðvaður á 10. mínútu honum
til heiðurs og allir klöppuðu fyrir
honum, líka mótherjar og dómarar.
Í leikslok föðmuðust danski þjálf-
arinn, Kasper Hjulmand, og Belg-
inn, Romelu Lukaku, sem hafði til-
einkað Eriksen mark sitt í leiknum
á undan. Þú þurftir ekki að heyra
hvað fór þeim á milli en umræðu-
efnið var augljóst.
Eftir að Christian Eriksen hafði
verið giftusamlega bjargað vökn-
uðu margar spurningar: Hvað á að
sýna í sjónvarpi og hvað ekki? Hvað
er fréttamennska, hvenær verður
hún of nærgöngul? Brugðust
stjórnendur og myndatökumenn við
af ábyrgð? Hvenær má mynda og
hvernig? Þessar vangaveltur end-
urspegluðu kosti okkar frjálsa sam-
félags. Í Evrópu leyfist okkur að
hafa mismunandi skoðanir. Þar
með talin gagnrýni Dana á að leikn-
um skyldi hafa verið haldið áfram.
Þarf ekki á óvini að halda
Alþjóðlegar deilur spruttu af
pólitískri athöfn. Lið Englands,