Morgunblaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2021
komið frá sér þremur plötum er
þeir komust í kynni við Andrew M.
McKenzie sem er hvað kunnastur
fyrir eins manns sveit sína The
Hafler Trio. McKenzie var þá þegar
orðin goðsögn innan „industrial“-
geirans og var í heimsókn á Íslandi
ásamt Carl Michael von Hauss-
wolff. McKenzie flutti í kjölfarið til
landsins, bjó hér í áratug og hafði
mikil áhrif á þróun og viðhald ís-
lenskrar tilraunatónlistar. Designer
Time var tekin upp árið 1992 í kæli-
klefa í yfirgefnu sláturhúsi. Með í
för var Indriði Einarsson (nú Indr-
iði Viðar) úr hinni mikilhæfu til-
rauna- og uppákomusveit Inferno 5.
Þessi mannskapur hófst handa við
að hljóðrita hin ýmsu hljóð í rýminu
sem voru svo skæld til og unnin
áfram í tölvuforritum. Útkoman,
sem var blanda af óhljóðum, töktum
og sveimbundnum sprettum, kom
svo út 1994 í gegnum hið virta hol-
lenska fyrirtæki Staalplaat eins og
áður er getið.
Þó að platan vísi í létthlustunar-
tónlist á umslaginu er ekkert slíkt
að finna í sjálfri tónlistinni sem
samanstendur af fimm lögum eða
verkum, hið síðasta 20 mínútur.
Tónlistin er samt ekkert sérstak-
lega áleitin, hörð eða bylmings-
bundin; þetta er ekki gargandi
hávaði og brjálæði. Nei, tónlistin er
lúmskari en svo og eiginlega læðist
aftan að manni. Hún er draugaleg
og næsta prakkaraleg og fyrsta lag-
ið býr yfir smávegis Residents-blæ.
Hið tuttuga mínútna „Theolepsy“
virðist t.d. samanstanda af sömu
einföldu sínusbylgjunni út í gegn en
er samt „skreytt“ með öðrum
áhrifshljóðum sem virðast koma frá
einhverjum skuggalegum hand-
anheimi. Martraðarkenndin minnir
á köflum á Selected Ambient
Works II eftir Aphex Twin sem
kom út sama ár. Heyrn er sögu rík-
ari og Artoffact heldur að sjálf-
sögðu úti öflugri Bandcamp-síðu
þar sem hægt er að nálgast tón-
dæmi. Dr. Gunni ritaði dóm á sín-
um tíma um plötuna og sökum eðlis
verksins sleppti hann stjörnugjöf.
Gaf þess í stað táknin „?!“ og kall-
aði það hreina fífldirfsku að ætla
sér að hlusta á það sem fyrir lá.
Til stendur að vera með allsherj-
ar endurútgáfu á öllu efni Reptil-
icus í gegnum Artoffact Records og
staðfest hefur verið að næsta verk-
efni verði hin magnaða Crusher of
Bones (1990). Designer Time má nú
nálgast á Bandcamp og Spotify en
efnisleg eintök eru væntanleg síð-
sumars.
Hvað er hér á seyði?
Íslenska „industrial“
sveitin Reptilicus er
nú í óða önn að
endurútgefa illfáanlegt
efni. Nýverið kom
Designer Time út,
plata sem hún gerði
með The Hafler Trio
og gaf út árið 1994.
»
Hún er draugaleg og
næsta prakkaraleg
og fyrsta lagið býr
yfir smávegis
Residents-blæ
Skuggabaldrar Andrew McKenzie í miðið, Guðmundur
Ingi Markússon lengst til vinstri og Jóhann Eiríksson
lengst til hægri. Indriði Viðar úr Inferno 5 er aftastur en
hann tók auk þess myndina með tímastilli.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Reptilicus er eitt merkastafyrirbærið sem íslensk til-raunatónlistarhugsun hefur
getið af sér. Hljómsveitin kom fyrst
saman árið 1988 og hefur frá upp-
hafi verið skipuð þeim Guðmundi
Inga Markússyni og Jóhanni
Eiríkssyni. Þeir félagar sinntu „in-
dustrial“-tónlist sem nálega enginn
hreyfði við og eljan skilaði þeim
nokkuð langt inn í alþjóðlegu til-
rauna- og jaðarsenuna við upphaf
tíunda áratugarins. Unnið er með
tölvur, raftónlist og óhljóð meðal
annars og stundum er tónlistin afar
torræð og óhlutbundin en hún á það
líka til að vera lokkandi, dulúðug og
straumlínulöguð. Eftir sveitina ligg-
ur slatti af útgáfum og nú hafa þeir
félagar hrundið af stað endurút-
gáfustarfi, enda margar af plötun-
um löngu ófáanlegar. Designer
Time kom upprunalega út á Sta-
alplaat en hefur nú fengið laglega
yfirhalningu hjá hinu kanadíska
Artoffact Records sem hefur m.a.
gefið út hinar íslensku Kælan
mikla, Legend og Horrible Youth.
Platan kemur nú út á hvítum vínyl
og geisladiski (auk þess að liggja á
streymisveitum) og var
endurhljómjöfnuð af Curver Thor-
oddsen.
Þeir Guðmundur og Jóhann
höfðu verið starfandi í þrjú ár og