Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 1
FRETTIR
33. tbl. 2. árg. föstudagur 21. september 1984
„Icelandic Fisheries ’84“:
Stærsta sýning á Islandi til þessa
Næsta sjávarútvegssýning haldin 1987
Sýningin „Iclandic Fisheries ’84“
er orðin að veruleika, en nú er
liðið rétt ár, frá því að ákvörðun
var tekin um að halda þessa miklu
sýningu. I upphafi átti sýningin
ekki að verða meiri að umfangi, en
sem svaraði gólffleti Laugardals-
hallar. Nokkru eftir að tilkynnt
var um sýninguna, varð Ijóst, að
Laugardalshöll ein myndi ekki
nægja sem sýningarsvæði. Því var
brugðið á það ráð að tvöfalda
stærð sýningarsvæðis og leigja sýn-
ingarhús erlendis frá og er sýningin
orðin með stærri sjávarútvegssýn-
ingum, sem haldin er í heiminum
á þessu ári.
John Legate framkvæmdastjóri
Industrial and Trade Fairs sagði í
samtali við Fiskifréttir fyrir
nokkru, að áhugi fyrir sýningunni
erlendis væri margfalt meiri en
hann hefði átt von á í upphafi.
Kvað hann mikla þáttöku ís-
lenskra fyrirtækja vera sér einstakt
ánægjuefni og fyrir ITF væri
gaman, að fyrsta sýning, sem fyrir-
tækið skipuleggði á íslandi, skyldi
vera sú stærsta sem haldin hefði
verið hérlendis, en alls þekur sýn-
ingarsvæðið 10.000 m2.
Margir mjög stórir básar eru á
sýningarsvæðinu, sá stærsti rösk-
lega 200 fermetrar, nokkrir eru
milli 100 og 200 fermetrar og
fjöldinn er rétt innan við 100
fermetrar. Hafa ekki sést jafn
stórir sýningarbásar á sýningu
áður. Margar þjóðir eru með sér-
stök sýningarsvæði og má þar
nefna Dani og Norðmenn að hluta.
Básar á sýningunni eru rétt um
200, en samtals munu vörur frá
400 til 500 framleiðendum verða
kynntar. Alíslenskir básar eru hátt
í 100, sem sýnir þá miklu breidd
sem er í framleiðslu á búnaði til
sjávarútvegs hér á landi.
John Legate sagði í samtalinu
við Fiskifréttir, að hann hefði trú
á, að ísland gæti orðið framtíðar
sýningarland. Landið lægi mið-
svæðis í Atlantshafi og samgöngur
hingað frá Evrópu og Ameríku
væru góðar. Af þeim sökum meðal
annars hefði ITF ákveðið að vera
með sýningu á íslandi á næsta ári.
Verður það Fiskeldis og loðdýra-
ræktarsýning. Sýningardagar
verða 16. til 18. september. Þá er
ákveðið að halda aðra sjávarút-
vegssýningu 1987 á Islandi.