Fiskifréttir - 21.09.1984, Side 2
2
föstudagur 21. september
Kristján Ó Skagtjörð:
Björgunartækin í öndvegi
Kristján Ó. Skagfjörð er gamalgró-
ið fyrirtæki á íslenska vísu, stofnað
árið 1912 af ungum Breiðfirðingi,
reyndar Flateyingi. Þctta fyrirtæki
hefur þróast í tímanna rás, og er
síungt og fylgist því vel með öllum
nýjungum. Það kemur því ekki á
óvart að meðal sýningaratriða í 98
fermetra sýningarrými fyrirtækis-
ins eru einkatölvurnar frá Digital
ásamt forritum sem hönnuð eru
fyrir útgerðarfyrirtækin.
Eins og gefur að skilja hefur
útgerðardeild Kristjáns Ó. Skag-
fjörð hf. marga góða framleiðend-
ur erlendis. Við báðum Bjarna
Gíslason deildarstjóra að greina
okkur frá því helsta sem þeir hafa
upp á að bjóða á íslensku sjávarút-
vegssýningunni ’84.
„Stærsti umboðsaðilinn okkar
er Cosalt í Grimsby, meira en
hundrað ára gamalt fyrirtæki og
eitt hið allra stærsta í heiminum í
sölu veiðarfæra. Þeir framleiða og
selja vöru frá öðrum í nánast öllu
sem fiskveiðum viðkemur“, sagði
Bjarni.
Keðjurnar að útrýma vírum?
Frá fyrirtækinu Wheway Watson
sýnir KÓS keðjur, en þær var farið
að reyna fyrir 15-17 árum í stað
víra gegnum bobbinga fyrir fót-
reipi. Bjarni sagði að núorðið
notaði varla nokkur maður annað
en keðjurnar. Þær væru sterkari,
tognuðu ekki eða hlypu í gadda.
Endingin væri líklega tíföld, en
kostnaðurinn þre eða fjórfaldur á
við vírana. Hagræðingin væri
óumdeilanleg og keðjurnar væru
mun betri í allri meðhöndlun.
Björgunartæki í öndvegi
Bjarni Gíslason sagði ennfremur
að björgunarbátar og búnaður yrði
í öndvegi hjá KÓS á sýningunni.
Það er danska fyrirtækið Nordisk
Gummibadsfabrik sem framleiðir
VIKIN G-gúmbj örgunarbátana,
sem fyrirtækið flytur inn og selur
hér. Auk þess eru sýndir flotbún-
ingar, björgunarhringir, blys og
ótal margt fleira sem notað er við
björgun mannslífa.
Toghlerar fyrir rækjuskipin
í landi þar sem rækjan er farin að
skipa stóran sess munu toghlerar
sem KÓS flytur inn vekja athygli.
Hlerar þessir hafa mjög rutt sér til
rúms í Rækjufiskeríi og á Norður-
sjó. Þeir standa á minni hraða en
hefðbundnir hlerar, allt niður í 1,8
til 2 mílur, þurfa minni toghraða,
því yfirleitt þurfa hefðbundnir
hlerar minnst 3 mílur til að standa.
Kjörinn toghraði fyrir rækjuna er
hinsvegar 2-2,7 mílur ef eitthvað
á að hafast.
Tölvuvæðing sjávarútvegsfyrir-
tækja
Kristján Ó. Skagfjörð hf. hefur
einkaumboð fyrir bandaríska
tölvuframleiðandann DIGITAL
eins og kunnugt er. Tölvudeild
fyrirtækisins verður á sýningunni
með kynningu á möguleikunum á
notkun Rainbow-einkatölvunnar
fyrir sjávarútveg, fiskvinnslu og
netagerð.
Sagði Hálfdán Karlsson að hug-
búnaðurinn fyrir sjávarútveginn
væri hannaður af Óðni í Vest-
mannaeyjum. Þá er byrjað að
hanna hugbúnað fyrir netagerð,
sem er nýjung sem mun auðvelda
mönnum að gera verk og kostnað-
arreikninga fyrir netagerðina.
Tölvan er líka kjörin fyrir hvers-
konar fjárhags og viðskiptamanna-
bókhald og hana má tengja við
stimpilklukku þegar gerður er
launaútreikningur. Rainbow PC-
tölvan nær býsna langt, - en þar
sem geta hennar endar taka við
stærri tölvur Digital, sem geta
hentað fyrir margbrotna útreikn-
inga og áætlanagerð fiskvinnslu og
frystihúsa.
Netasalan minni, - og e. t. v.
skynsamlegri
Þeir hjá KÓS hafa gegnum áratugi
selt býsnin öll af netum. Sala á
þeim hefur dregist saman stórlega
að sögn Bjarna Gíslasonar. Nýt-
ingin hefur gjörbreyst með kvóta-
skiptingunni, og allt viðhorf til
netakaupa hafa sömuleiðis breyst.
Innkaupin eru minni en fyrr og
menn fresta gjarnan kaupum til
næsta árs en láta þau gömlu duga
út kvótann. Minni innkaup og e. t.
v. skynsamlegri eins og á stendur.
En fleira mun sýningarbás Kós
bjóða upp á. Þarna verða vindivél-
ar fyrir kassa, japönsk smíða með
sérbúnaði. Þarna verða líka lyfti-
tæki, rafdrifin og einnig án véla,
Þarna verður framleiðsluvara
Randers Reb í Danmörku, sem er
alþjóðleg verkmiðja og víðfræg.
Þá munu verða sýndar síldar og
hrognatunnur úr plasti, stærðirnar
eru 210, 120 og 60 lítra.
Umboðsaðilar
Útgefftarmenn - Skipstjórar
Fylkir Ltd.
Whamdiff Rd.
Fish Docks
Grimsby - DN 31 QF
Umboðsaðili fyrir ísl. fiskiskip i Grimsby, FHull og
Fleetwood. - Áratuga reynsla. Simi (0472) 44721
Telex: 527173 Heimasimar: Jón Ofgeirsson
(0472) 43203, Aöalsteinn Rnsen (0472) 816223.
Okkar þjónusta er ykkar öryggi.
Upplýsingar á islandi gefur
LÍ.Ú. sími 29500
HANDLYFTIVAGNAR
margar gerðir
UMBODS OG HEILDVERSL UN
LAGMULI5, 108 REYKJA VIK, S/MI 91 685222
PÖSTHÓLF 887. 121REYKJAVÍK
Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri virðir fyrir sér toghlera sem
Skagfjörð flytur inn.
Starfsmaður Kristjáns Ó. Skagfjörð með handvörulyftara, sem
fyrirtækið flytur inn.
Skagfjörð hefur alla tíð flutt inn mikið af Viki.ng
gúmmíbjörgunarbátum.