Fiskifréttir - 21.09.1984, Page 6
6
föstudagur 21. september
,,Útflutningurinn sífellt vaxandi
þáttur í starfemi fyrirtaekisins“
- segir Ævar Guðmundsson hjá Seif hf.
Fyrirtækið Seifur hf. Grandagarði
13, í Reykjavík verður 15 ára í
nóvember næstkomandi. Stofn-
endur þess voru Ævar Guðmunds-
son, Pétur Kidson og fleiri. I
upphafí var innflutningur helsta
viðskiptasviðið og einnig var um-
boðssala veigamikill þáttur í starf-
seminni. í fyrstu seldi fyrirtækið
ýmiskonar varning og þá var starfs-
maður ásamt Ævari, Stefán Stef-
ánsson, en fyrir nokkru var fyrir-
tækinu skipt, Stefán stofnaði Vélar
og tæki hf., en Ævar hélt áfram
með Seif. Starfsemi fyrirtækisins
þróaðist þannig, að smá saman var
lögð meiri og meiri áhersla á veið-
arfærainnflutning og sölu veiðar-
færa og er veiðarfærasala nú helsti
þáttur fyrirtækisins ásamt útflutn-
ingi á físki.
„Það varð sífellt aukning í veið-
arfærasölunni þar til fyrir tveimur
árum, að hún fór að dragast saman
og samdrátturinn í henni varir
ennþá,“ segirÆvar Guðmundsson
framkvæmdastjóri, „og ég á ekki
von á að veiðarfærasalan aukist
mikið í bráð, það er að segja á
meðan núverandi ástand varir hjá
fiskveiðiflotanum."
Ævar, sem nú á fyrirtækið einn
ásamt fjölskyldu sinni segir, að
þegar á árinu 1977 hafi hann
byrjað að þreifa fyrir sér með
útflutning á fiskafurðum og hafi sá
þáttur í starfsemi fyrirtækisins sí-
fellt farið vaxandi.
„Við höfum hug á að auka
þennan þátt í starfseminni enn
frekar, en fram að þessu höfum
við fyrst og fremst flutt út ferskan
fisk og síðan frysta rækju. f haust
munum við hefja útflutning á
ferskum flökum með flugvélum til
Bandaríkjanna. Það sem gerir
okkur það mögulegt meðal annars
er að fyrirtækið yfirtók fiskverkun-
arhús á Seltjarnarnesi sl. áramót.
í sumar hefur verið unnið að því
að yfirfara og standsetja húsin á
ný, sem voru frekar illa farin, en
við eigum að geta hafið vinnslu af
fullum krafti með haustinu.
Eins og fyrr segir, þá voru
starfsmenn Seifs 2 í byrjun, en nú
vinna 8 manns á skrifstofunni, og
síðan bætast þeir við sem eru í
fiskverkuninni.
Á þessu ári hefur Seifur flutt út
á þriðja hundrað tonn af frystri
rækju í skel. Um þennan útflutn-
ing segir Ævar, að þótt menn
kvarti undan lágu rækjuverði í
augnablikinu, þá lítist sér alls ekki
illa á markaðinn og að markaðirnir
í Evrópu og Japan eigi báðir eftir
að verða góðir.
„Þá horfi ég með miklum áhuga
á Evrópumarkað í því skyni að
selja þangað ferskar fiskafurðir.
Að vísu eru mörg ljón á veginum
við að brjótast inn á þann markað,
meðal annars há flutningsgjöld frá
íslandi. Þá skortir líka réttar um-
búðir, sem dæmi má nefna að hér
á landi vantar algjörlega frauð-
plastumbúðir. Við erum í sífelldu
sambandi við aðila í Belgíu,
Þýskalandi, Frakklandi og Bret-
landi og í framtíðinni tel ég að við
eigum góða möguleika á að selja
þangað rækju,“ segir Ævar.
PS-10 flotin frá Nova
bylting í floti á síidar-
og loðnunætur
Á síðustu árum hefur orðið mikil
framþróun í gerð flotholta á síldar-
og loðnunætur. Frauðplastflot
hafa verið notuð á næturnar, allt
frá því að hætt var að nota kork
sem flot á árunum fyrir 1960.
Frauðplastflotin höfðu gífurlega
yfirburði fram yfir korkinn, en
engu að síður höfðu þau þann
galla að smá saman urðu þau stökk
og vildu brotna af nótunum sér-
staklega í frosti. Fyrirtækið
NOVA a/s í Álasundi er nú komið
með á markað nýja gerð af flotum
fyrir nætur. Þessi nýju flot eru fyllt
lofti og korkteinninn á nótinni
PS-10 flot í notkun.
gengur í gegnum þau mið. NOVA
fyrirtækið reyndi þessi flot í tvö ár
um borð í norskum skipum áður
en þau voru sett á markað. Við
notkun reyndust þessi flot mikið
sterkari en hefðbundin plastflot,
auk þess sem aldrei þurfti að setja
aukabelgi á næturnar umhverfis
poka, seint á loðnuvertíð eða þeg-
ar vitað var að um stór köst gæti
verið að ræða, en flotmagnið í
PS-10 flotunum frá NOVA er
mikið meira en menn eiga að
venjast.
Um 900 PS-10 flot fara á venju-
lega hringnót, það er kringum 300
faðma nót, en að öllu jöfnu eru
sett þrjú flot á hvern faðm.
Hefðbundin flot hafa líka oft
farið illa í kraftblökkunum, en
PS-10 flotin þola allt það hnjask
sem þau verða fyrir þar, án þess að
það sjái á þeim.
PS-10 flotin hafa líka þann kost
að mjög létt er að leggja þau í
nótakassa, enda eru þau fyrirferð-
arminni en hefðbundin flot. Stærð
PS-10 flotsins er: lengd 300 mm.
Þvermál 240 mm, teinagat 24 mm.
Mikill fjöldi vöruteg-
unda
Seifur flytur inn alls konar net og
nótaefni frá Taiwan og Japan,
ennfremur fiskilínu frá Noregi og
fisiöngla frá Ameríku. Ennfremur
selur fyrirtækið allskonar lása.