Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 13
föstudagur 21. september
13
J. Hinriksson:
oghlerar sem
slá í gegn
— og sérsmiðaður bátur á innisvæðinu
Pegar fréttamann Fiskifrétta bar
að garði hjá J. Hinriksson á dögun-
um var engu líkara en að fyrirtækið
væri farið að smíða báta. Og
raunar var verið að smíða þar allra
laglegasta 20 tonna bát. En hann
verður aldrei sjósettur, en verður
hinsvegar til mestu prýði á sýning-
unni í Laugardalnum.
„Við ætlum að sýna ýmsar tog-
vindur í bátnum, blakkir, dekk-
rúllur og að sjálfsögðu toghlera í
bátnum okkar. Það verður allt á
fleygiferð í bátnum, mikið um að
vera“, sagði Jósafat Hinriksson.
„Þessi bátur verður okkar sýning-
arbás inni í höllinni".
Á útisvæði mun J. Hinriksson
vera með stóri toghlerana og helst
sagðist Jósafat vilja að þeir yrðu í
lausu lofti þannig að hægt yrði að
sýna þá almennilega, og það verð-
ur gert ef tök verða á.
Jósafat Hinriksson viS telexið.
Jósafat rekur fyrirtæki sem hófst
í bílskúr eins og mörg önnur, sem
hafa spjarað sig. í dag eru uppi
ráðagerðir um viðbyggingu í
Súðarvoginum þar sem hin stóra
smiðja hans er í dag.
Eftirsóttasta framleiðslan hjá
fyrirtækinu eru toghlerar af ýms-
um stærðum og gerðum. Jósafat
sagðist hættur að telja söluna í
pörum, talaði um tonnafjöldann í
staðinn. Sagðist hann selja þetta
60 tonn í toghlerum að meðaltali á
mánuði, en þeir eru í 60 þyngdum
og stærðum.
Unnið að framleiðslu toghlera.
Toghlerar sóttir til fyrirtækisins.
Toghlerarnir fara víða um lönd.
Hér á landi sagði Jósafat að nær
allur togskipaflotinn notaði hler-
ana frá sér, í Færeyjum er um 60%
af hinum myndarlega flota tog-
veiðiskipa búinn toghlerum frá J.
Hinriksson, þar af eru flestir stóru
togaranna með 1900 kílóa toghler-
ann, þann stærsta.
„Ég var að tala við Noreg og
fékk góðar fréttir þaðan, ánægju-
raddir frá mínum mönnum, sem
voru að veiðum í Barentshafi",
segir Jósafat. „Útflutningurinn
hefur aukist á þessu ári og salan
hér innanlands einnig. Þeir á rækj-
unni eru langflestir með mína
hlera og líkar vel við þá“, sagði
hann. Meðal þjóða sem nota ís-
lensku hlerana eru Skotar, Eng-
lendingar, írar og Shetlandseying-
ar, Kanadamenn, Bandaríkja-
menn og nú síðast Grænlendingar,
en Konunglega Grænlandsversl-
Unin rekur nokkra stóra og mynd-
arlega togara sem brátt munu fá
íslensku toghlerana.
- En hver er leyndardómurinn
bak við toghlerana frá J. Hinriks-
son?
„Jú, ég er kominn niður á að
hafa alla punkta í hleranum rétta.
Þeir fara vel frá borði, eru fljótir
til botns með trollið og byrja strax
að veiða. Þeir þurfa naumast nema
þriðjung tíma á við aðra hlera. Og
góður kostur við þá er að þeir
þurfa mun minni vír en aðrir, 100
föðmum styttri í það minnsta.
Þetta sparar stórfé í veiðum, mun-
ar heilu holi á sólarhring, 200
holum á ári, sem getur þýtt 600
tonn af fiski á einu ári eftir því sem
hann sagði mér skipstjórinn á Nils
Pauli, nýja togaranum þeirra í
Færeyjum.
Jósafat sagðist gera sér góðar
vonir um árangur á sýningunni hér
í Reykjavík. fyrirtæki hans hefur
verið mjög áberandi á stórum
sýningum víða um lönd síðustu 12
árin. Núna gerði hann sér enn
stærri vonir en á fyrri sýningum.
Síðast sýndi hann í Aberdeen í
Skotlandi í júnímánuði og sagði
að sú sýning héfði gefið góða raun.