Fiskifréttir - 21.09.1984, Page 28
28
föstudagur 21. september
Hampiðjan:
Rannsóknir og
upplýsngar
Úr vinnslusal Hampiðjunnar.
„Yfirskrift báss Hampiðjunnar á
Sjávarútvegssýningunni í Laugar-
dalshöll verður: Rannsóknir og
þróun í veiðarfæragerð og upplýs-
ingastarfsemi um nýjungar og
þróun,“ sögðu Gunnar Svavarsson
forstjóri Hampiðjunnar og Guð-
mundur Gunnarsson sölustjóri í
viðtali við Fiskifréttir.
„Okkur er það alveg ljóst, að
það er nauðsynlegt að hafa sífelld-
ar rannsóknir í gangi til að tryggja
næg vörugæði. Við leggjun sífellt
meiri áherslu á þann þátt til að við
getum verið leiðandi afl bæði í
framleiðslunni og einnig varðandi
notkun úti á sjó. Það má segja að
rannsóknaþátturinn sé tvíþættur.
Annars vegar stundum við sjálfir
rannsóknir og hins vegar leitum
við upplýsinga um þær rannsóknir
sem framkvæmdar hafa verið ann-
ars staðar."
Peir Gunnar og Guðmundur
kváðust vilja dreifa upplýsingum
sem að gagni geta komið til þeirra
sem kaupa vöruna. Farnar eru
margar leiðir í því sambandi en
þeir nefndu ferð sem Hampiðjan
efndi til á síðasta ári í tilraunatank-
inn í Hirtshals. Þar voru skoðuð
og framkvæmdar mælingar á 7
trollmódelum sem notuð eru á
íslandi.
Vegna eindreginna óska, var
gert myndband um þessar tilraunir
sem dreift hefur verið hér á landi
í á annað hundrað eintökum.
„Hampiðjan hefur áhuga á að
koma sér upp tilraunatanki hér á
landi,“ sagði Gunnar, „en eins og
ástandið er nú í íslenskum sjávar-
útvegi höfum við ekkert bolmagn
til þess.“
Þá greindu þeir frá heimsóknum
Hampiðjumanna í verstöðvar. Það
hefur til dæmis farið hópur til að
kynna kostnaðarskiptingu við
veiðar að því er lýtur að veiðarfær-
um, og einnig var leiðbeint um
hvernig eigi að umgangast veiðar-
færin. Og þá sögðust þeir einnig
njóta þess að tala við sjómenn og
fræðast af þeirra reynslu.
Aðspurðir um nýmæli hjá
Hampiðjunni greindu þeir Gunnar
og Guðmundur frá því, að á djúp-
rækjuveiðum sem stundaðar hafa
verið við Grænland hefðu verið
notuð stór og mikil troll með
smáum möskva. Hampiðjan hefur
verið stór á markaði fyrir slík
veiðarfæri • í Evrópu. En þessir
smáu möskvar leiða af sér að
mótstaða í sjónum er mjög mikil
og þess vegna er olíunotkun mjög
mikil. Því komu tilmæli til Hamp-
iðjunnar frá útgerðarmanni í Dan-
mörku, hvort fyritækið gæti ekki
hannað grennra garn, sem hefði
þó sama styrk. Farið var að rann-
saka málið, sem endaði með hönn-
un á garni, sem er 1,8 mm fléttað.
Sami útgerðarmaður og óskað
hafði eftir þessu prófaði það og
stækkaði um leið hlerana. Þannig
segist hann spara 10% í olíu, en
líklegt er, að ef sama stærð af
hlerum hefði verið notuð áfram,
hefði sparnaðurinn orðið allt að
30%. Þetta garn er að ryðja sér til
rúms, enda lipurt og þjált.
„Talandi um rækjutroll," sagði
Gunnar, „Þá hefur Guðmundur
Sveinsson netagerðarmeistari á
ísafirði sýnt það lofsverða framtak
að kaupa til landsins tæki til neðan-
sjávarmyndatöku. Þettatæki hefur
mikið verið notað við rannsóknir
á rækjutrollum í Djúpinu. Vélin
hefur þó nýst til fleiri hluta. Hún
var til dæmis nýtt við björgun
þyrlu Landhelgisgæslunnar sem
fórst í Jökulfjörðum. Menn telja
að það hefði verið óframkvæman-
legt án þessa tækis.“
Hampiðjan hefur leigt þetta
tæki ásamt sjtjórnanda til rann-
sókna á þorskanetum í Breiðafirði
í samvinnu við Guðna Þorsteins-
son hjá Hafrannsóknastofnun.
Höfundur þessa tækis er Breska
hafrannsóknastofnunin í Aber-
deen í Skotlandi. Nú standa yfir
samningar við þá um að fá útgáfu-
rétt á íslandi á 3 myndum sem sýna
hegðun fisks gagnvart trolli og
dragnót og ýmsum öðrum veiðar-
færum. Ætlunin er að dreifa spól-
unni til þeirra, sem áhuga kunna
að hafa hér á landi, gegn vægu
gjaldi.
Að lokum sögðu þeir Gunnar
Svavarsson og Guðmundur Gunn-
arsson hjá Hampiðjunni að þeir
byðu alla velkomna í bás Hamp-
iðjunnar á Sjávarútvegssýningunni
í Laugardalshöll.
KVIKK 205
Hausskurðarvélin. Bylting
í nýtingu þorskhausa
Auka má nýtingu á slægðum þorski með haus um
5-13% eftir vinnsluaðferð.
Vinnslumöguleikar:
1. Ferskt/frysting
Við sýnum hausskurðarvélina í vinnslu á 3' Marningur
sjávarútvegssýningunni
í Laugardalshöll 22.-26. september n. k. á bás D-34.
KVIKK sf.
Ingólfsstræti 1a
101 Reykjavík
Sími 91-29177, tlx: 2213 vikur.