Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 31
föstudagur 21. september
31
Sjávarafurðadeild Sambandsins:
Reynt að hafa allar rekstrarvörur
fyrir sjávarútveginn tiltækar
Samband íslenskra samvinnu-
félaga hefur með höndum opinn
útflutning á frystum fiski, skreið,
lýsi og mjöli. Auk þess veitir
Sjávarafurðadeildin sínum við-
skiptaaðilum margvíslega þjón-
ustu og sér um innkaup af ýmsu
tagi og öflun umbúða fyrir afurð-
irnar. Til að fræðast nánar um
þann þátt í þjónustu SÍS höfðu
Fiskifréttir tal af þeim Gunnari
Gröndal og Guðmundi Ibsen og
fræddu þeir lesendur Fiskifrétta
um störf sín.
„Við önnumst útvegun á öllum
þeim umbúðum sem notaðar eru
fyrir útflutningsframleiðsluna. I’á
höfum við tiltækar allar þær
rekstrarvörur sem við höfum á-
stæðu til að ætla að frystihús þurfi
á að halda. Þá höfum við á boðstól-
um útgerðarvörur ýmiss konar,
þar á meðal veiðarfæri. Pað eru
bæði veiðarfæri sem við flytjum
inn og einnig innlend framleiðsla.
Guðmundur Ibsen.
Pað er algengt að fiskverkendur
leiti til okkar til kaupa á, eða til að
freista þess að láta okkur útvega
þær vörur sem þeir kunna að þurfa
á að halda. Og við seljum til hvers
sem er, ekki aðeins Sambandsfyr-
irtækja allar vörur, nema auðvitað
umbúðirnar sem eru sérmerktar."
Þeir Gunnar og Guðmundur
sögðu að umbúðirnar væru stærsti
þátturinn hjá þeim, en útgerðar-
vörur væru sífellt vaxandi þáttur í
starfsemi deildarinnar. Pað eru
veiðarfæri, net og aðrar útgerðar-
vörur.
„Við viljum geta þess, að innan
sjávarafurðadeildar er mikið unn-
ið að þróunarmálum í sjávarút-
vegi. Þar eru menn til taks, sem
eru t. d. til ráðgjafar fyrir þau
frystihús sem hyggja á tækjakaup.
Þá má og segja að fyrirtækið
Framleiðni, sem veitir hagræð-
ingarþjónustu á sviði fiskiðnaðar
sé í miklum tengslum við fyrr-
Gunnar Gröndal.
greinda aðila innan Sambandsins
sem vinna að þróunarmálum.“
„Það er margt sem þarf að huga
að og þetta tengist óbeint því sem
við erum að gera hér, það er auka
hagkvæmni í rekstri. Þessir aðilar
huga að pökkunaraðferðum. Þá
reyna menn að gera sér grein fyrir
hvaða stærðir henta hinum ýmsu
mörkuðum og eins öðrum þörfum
markaðanna. Þessi deild átti til
dæmis frumkvæði að hinum svo-
kölluðu formflökum."
Blaðamaður innti þá Gunnar og
Guðmund eftir því hvort ekki væri
lögð áhersla á að nýta íslenskar
vörur í sjávarútveginum hjá SÍS.
Þeir sögðu að það væri lagt kapp á
að nota íslenskar vörur í þeim
tilfellum sem þær væru sam-
keppnisfærar bæði að því er varðar
verð og gæði. Skrifstofa þeirra
Gunnars og Guðmundar er í Sam-
bandshúsinu við Sölfhólsgötu, en
vöruskemma er við Floltabakka á
athafnasvæði Sambandsins þar.
KALD FISK
KVÆRNER KULDE as en av Europas
ledende produsenter av kulde-
maskineri. Bedriften harspesialisertseg
pá leveransertil fiskefláten og fiskeindu-
strien pá land.
KVÆRNER KULDE a* driver systematisk og konti-
nueriig produktutvikling for praktisk utnyttelse
av kuldeteknikken, særlig for konservering av
matvarer. Velkvalifiserte medarbeidere pá
alle plan sikrer forsteklasses produkter.
KVÆRNER KULDE as
Tilsluttet Kværner konsernet
Postboks 115,1301 SandvikaTlf.(02) 544960 Telex 76 480 kulden