Fiskifréttir - 21.09.1984, Page 39
föstudagur 21. september
39
Albatross og Stálvinsislan:
Fullnægja öllum þör£um fiskiðnaðarins
vegna flokkunar á £iski og fiskafurðum
Nú á sjávarútvegssýningunni mun
Sjávarvinnslan hf. sýna eigin fram-
leiðslu, auk ýmissa tækja og véla,
sem það hefur nýlega hafið inn-
flutning á, í samvinnu við umboðs-
og heildverslunina Albatross.
Sérhæfðir í flokkun
Stálvinnslan hf. hefur sérhæft sig í
smíði flokkunarvéla í yfir tuttugu
ár. í samvinnu við Albatross hefur
nú verið hafinn innflutningur á
viðurkenndum flokkunarvélum frá
Danmörku og Englandi, þannig
að fyrirtækin geta nú fullnægt
öllum þörfum fiskiðnaðar vegna
flokkunar á fisk eða fiskafurðum.
Einnig munu fyrirtækin bjóða
upp á ýmsar aðrar nýjungar í
innflutningi.
STAVA síldar- og loðnuflokk-
unarvél
STAVA flokkunarvélin hefur ver-
ið framleidd af Stálvinnslunni yfir
20 ár og þarf vart að kynna hana
fyrir íslenskum fiskvinnslufyrir-
tækjum. Yfir 200 vélar hafa verið
framleiddar og stór hluti þeirra er
í notkun víðs vegar í Norður-Am-
eríku og Evrópu. Þetta er tvímæla-
laust nákvæmasta flokkunarvélin
á markaðinum auk þess sem hún
er afkastameiri og hljóðlátari en
nokkur önnur. Hún er fáanleg
vökva- eða rafmagnsdrifin. Hægt
er að fá hana úr ryðfríu stáli.
STAVA humarflokkunarvél
Vélin er hönnuð af Stálvinnslunni
hf. til að flokka humarhala. Vél-
arnar hafa verið í notkun um
árabil og reynst mjög vel. Sérstakt
mötunarborð fylgir vélunum til að
tryggja afköst og nákvæmari
flokkun. Vélarnar fást nú með
stillanlegum völsum úr ryðfríu
stáli, sem auðveldar mjög að
breyta stærðarmörkum milli
flokka.
Trio Herkules rækjuflokkunarvél
Vélarnar hafa verið framleiddar af
Trio Nexö í Danmörku í meir en
tíu ár. Hin góða reynsla, sem
fengist hefur af vélunum, hefur
leitt til þess að þær eru mest seldu
rækjuflokkunarvélar á Norður-
löndum, og eru einnig í notkun
víða í öðrum heimsálfum. Vélarn-
ar eru fáanlegar fyrir 3-9 flokka,
og eru stærðarmörk milli flokka
auðstillanleg. Þærfást í galvaníser-
uðu eða ryðfríu stáli, rafmagns-
eða vökvadrifnar.
Sortaweigh flokkunar- og sam-
valsvél
Sortaweigh er tvímælalaust full-
komnasta flokkunarvélin á mark-
aðnum fyrir lausfryst flök, með
ótal möguleikum á vigtum í pakkn-
ingar, Vélin fæst með 10 stöðluð-
um forritum, þar sem þyngdar-
mörkum má breyta að vild. Mjög
einfalt er að stilla vélina fyrir þá
flokkun, sem þörf er fyrir, í hvert
skipti. Einnig er mögulegt að fá
sérhönnuð forrit við vélina. Sorta-
weigh Ltd. er tiltölulega ungt
breskt fyrirtæki. Síðan framleiðsla
hófst á flokkunar- og samvalsvél-
um, hefur fyrirtækið vart getac
annað eftirspurn.
Vökvadæla, tengd
beint við vél eða
reimdrifin
% - "i' JM
Stjórnloki, seni tryggir rétt rið
Alternator með vökva-
knúnum mótor
Utgerðarmenn — Rækjuvinnslur
Við bjóðum m. a.:
• Hönnun og búnað fyrir rækjuvinnslu-
kerfi um borð í skip.
• Rækjufiokkunarvélar.
• Suðupotta, hálf- og alsjálfvirka.
• FOS-FAT búnað fyrir rækjupillunarvélar.
TRIO HERKULES rækjuflokkunarvél
frá Trio Nexö,
Danmörk
Umboð
ALBATROSS
umboðs- og heildverslun
Pósthólf 4271
124 Reykjavík
Þeir nota Trio Herkules:
• Gunnjón GK 506
• Bjarni Ólafsson AK 70
• Eidborg HF 13
• Hafrenningur GK 38
• Patrekur BA 64
Góð greiðslukjör.
Aðstoð við fjármögnun.
Örugg þjónusta.
SALA OG ÞJÓNUSTA
Suöarvogi 4,104 Reykjavík
Sími: 91-36750