Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 45
föstudagur 21. september
45
Vélaverkstæðið Þór Vestmannaeyjum
Það er allt
1964 stofnuðu þeir Garðar Gísla-
son, Stefán Ólafsson og Hjálmar
Jónsson Vélaverkstæðið Þór Vest-
mannaeyjum.
í upphafi voru störf verkstæðis-
ins einskorðuð við hefðbundin vél-
averkstæðisstörf, viðgerðir á vél-
um í bátum og frystihúsum á
staðnum.
Vendipunkturinn í starfssemi
fyrirtækisins er svo 1966 þegar
hugvitsmaðurinn og þúsundþjala-
smiðurinn Sgimund Jóhannsson
leitaði til verkstæðisins með hug-
mynd að humarflokkunarvél. Það
var Sighvatur heitinn Bjarnason
þáverandi framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum sem styrkti tilraunir og
smíði þessarar vélar og er hún var
fullþróuð var henni komið fyrir í
Vinnslustöðinni í Vestmanna-
eyjum. Þessi humarflokkunarvél
var fyrsta skrefið í samstarfi véla-
verkstæðisins Þórs og Sigmunds.
Samstarfi sem staðið hefur allt
fram á þennan dag.
Öryggistæki, svo sem öryggis-
loki á línuspil og sleppibúnaðurinn
margumtalaði og umdeildi, eru
aðeins nokkur þeirra verka sem
þeir hafa unnið fram í sameiningu.
Steinbítsflökunarvél, sú fyrsta
sinnar tegundar í heiminum og
garnadráttarvél fyrir humar eru
einnig meðal hinna undraverðu
tækja sem eru ávextir þessa
samstarfs.
En alveg eins og störf Sigmunds
eru ekki einskorðuð við uppfinn-
ingar, eru störf Vélaverkstæðisins
Þór ekki einskorðuð við að finna
upp og smíða nýjar vélar. Þeir
hafa smíðað inn í frystihús bæði í
Eyjum og annarsstaðar á landinu.
Fiskiðjan Freyja á Suðureyri við
hægt
Súgandafjörð, sem þótti fullkomn-
asta frystihús á landinu er það var
opnað, allar vélar voru smíðaðar í
Vélaverkstæðinu Þó Vestmanna-
eyjum. Þeir hafa einnig tekið þátt
í að smíða inn í frystihús Útgerðar-
félag Akureyringa á Akureyri. Sá
búnaður var hannaður af Bergi
Ólafssyni bróður Stefáns.
Af þessari stuttu lýsingu má sjá,
að þúsundþjalasmiðirnir hjá Þór
eru ekki við eina fjölina felldir
hvað verkefnaval snertir. Þeirvoru
með þeim fyrstu sem fóru að
smíða hér á landi úr ryðfríu stáli
og með því gjörbreyttist öll vinnu
og hreinlætisaðstaða til hins betra
í frystihúsum.
Og alltaf er verið að vinna að
nýsmíðum í þeim tilgangi að auð-
velda þau störf sem stunduð eru í
sjávarútvegi. Netaafskurðarvél,
sem Sigurður Óskarsson og Jón
Leósson hafa fundið upp er nú að
koma á markað eftir u. þ. b. árs
tilraunir. Kemur hún til með að
valda byltingu í allri hirðingu neta.
Þessar vélar, ásamt framleiðslu á
Sigmundsgálganum eru þau verk-
efni sem hvað hæst bera í fram-
leiðslunni hjá Vélaverkstæðinu
Þór í dag. Það vinna 14 járniðnað-
armenn hjá fyrirtækinu í dag.
Ef ætti að gefa fyrirtækinu eitt-
hvað kjörorð, þá myndu þeir sem
til þekkja vera fljótir að finna það:
Það eru engin vandamál óleysan-
leg, það tekur aðeins mislangan
tíma að leysa þau.
Samstarf Vélaverkstæðisins
Þórs Vestmannaeyjum við upp-
finningamenn getur talist einstakt
í sinni röð og sagan á eftir að skipa
þessum mönnum á bekk með
helstu brautryðjendum á sviði ör-
yggismála í sjávarútvegi.
Gunnar Kári Magnússon
Frá Vestmannaeyjum
HIAB
LYFTIR
HIAB-kranarnir eru ótrúlega
fjölhæfir. Þeir hafa hvarvetna
sannað gildi sitt, jafnt á
sjó og landi.
HIAB-kranarnir lyfta þungu hlassi
við flutninga, í byggingarvinnu,
við uppskipun eða löndun
á fiski.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SIMI 35200