Fiskifréttir - 21.09.1984, Qupperneq 48
48
föstudagur 21. september
Utey hf.:
Fyrirtækið bíður nú sífellt fjöl-
breyttari búnað til sjávarútvegsins
„Við seljum ýmiss konar tæki og
búnað fyrir báta,“ sagði Ari Jóns-
son hjá Útey hf. í samtali við
Fiskifréttir. „Fyrirtækið, sem var
stofnað 1981, byrjaði fyrst og
fremst á að selja bátahitara, en nú
er um að ræða mun fjölbreyttara
vöruval. Með þessum bátahitur-
um, sem eru frá þýska fyrirtækinu
Eberspácher, er hægt að uppræta
það vandamál, sem raki getur
verið um borð í bátum og skipum.
Petta er hitablásari með hitastilli
og hann hefur verið viðurkenndur
af Siglingamálstofnun. í>að er
gaman að taka það hér fram, að
mörg fyrirtæki vilja helst ekki
setja dýr og frekar viðkvæm tæki
um borð í báta fyrr en bátahitarinn
er kominn um borð. Um gildi hans
er það að segja, að hann eyðir lykt
í vistarverum skipa og skiptir um
loft 10 sinnum á klukkustund.“
Fyrirtækið hefur einnig á boðstól-
um Loran C tæki, frá II Morrow í
Bandaríkjunum. Það fyrirtæki
hefur langa reynslu í gerð flugleið-
sögutækja, en fyrir fimm árum tók
fyrirtækið að framleiða leiðsögu-
tæki fyrir skip og báta. Petta tæki
hefur ýmsa kosti, en þeir sem
mestu máli skipta eru, að fyrirferð
þess er mjög lítil og frágangur þess
þannig að það er engin hætta á
skemmdum af völdum vatns. Og
síðast en ekki síst er verðið á
tækinu, sem nefnt er Avenger III
Loran mjög lágt.
„Mig langar einnig til að geta
sérstaklega um veðurkortaritara,
sem við höfum á boðstólum frá
Alden í Bandaríkjunum. Slíkir
veðurkortaritarar auka mjög á ör-
yggi sjófarenda og auðvelda þeim
að gera sér glögga grein fyrir
væntanlegum veðurbreytingum. Á
þeim er hægt að sjá stöðu hæða og
lægða í nágrenni við skip á sigl-
ingu,“ sagði Ari.
Ari greindi frá dýptarmælum
sem Útey flytur inn frá fyrirtækinu
ECHETEC. Þcir eru mjög smáir
og búa yfir þeim grundvallarkosti,
að vera tvískiptir, annars vegar er
skermurinn og hins vegar stjórn-
borðið. Það getur oft komið sér
mjög vel, ekki síst í litlum og
þröngum stýrishúsum. Þá minntist
hann einnig á sjálfstýringar frá
SHARP í Bretlandi, en það fyrir-
tæki hefur framleitt sjálfstýringar í
rúm 30 ár og hefur nú á boðstólum
endurbætta útgáfu.
Ari greindi frá þjónustu fyrir-
tækisins og tjáði blaðamanni með-
al annars, að Útey væri í þann
mund að hefja sérstaka þjónustu
fyrir þá sem eru að byggja báta.
Ari Jónsson í Útey hf. virðir fyrir
sér nýjan tölvu skrifara sem Útey
flytur inn.
Mun fyrirtækið hafa fyrirliggjandi
eða panta allar þær vörur sem sá
þarf sem ætlar sér að byggja nýjan
bát eða lagfæra og breyta gamla
bátnum sínum. „Við höfum verið
að undirbúa þessa þjónustu og
mun hún komast í fullan gang í
haust," sagði Ari. „Til dæmis um
það sem verður á boðstólum, vil
ég nefna til að nefna eitthvað: allar
stærðir af pollum, festingar á
handrið og stiga, siglingaljós, átta-
vita, mæla og mælaborð, lamir og
læsingar, glugga og gluggaefni,
flotholt og margt fleira. Jú, mig
langar til að minnast á ísskápa og
eldavélar. Það verða fyrirliggjandi
myndalistar hjá okkur og við von-
um að þetta auðveldi þeim sem
eru að smíða skip og báta störfin,"
sagði Ari Jónsson hjá Útey hf. að
lokum.
Á næstunni mun Útey hf. kynna
nýtt staðsetningarkerfi fyrir til
dæmis skip og báta. Kerfið er frá
bandaríska fyrirtækinu II Morrow
og byggist á Loran C tækjum. í
sérhverju skipi, er sendir tengdur
inn á Loran-kerfið og sendir hann
stöðugt boð. Móðurtölva í landi
tekur við þessum sendingum.
Hætti eitt skip að senda, fer mið-
stöðin að huga að skipinu og þá
tekur mjög skamma stund að stað-
setja þau skip sem næst eru þeim
stað þar sem sendingar fóru síðast
fram. Þá er innan örfárra mínútna
hægt að fara að huga að skipi, sem
hugsanlega hefur lent í einhverju
óhappi.
Þessi tækni verður kynnt hér á
landi í október og þess má geta, að
verðið á hverjum sendi sem þarf
að vera í sérhverju skipi er aðeins
10-15.000 krónur á núverandi
verðlagi. Þetta er vert athygli fyrir
þá sem huga að öryggismálum
sjómanna.