Fiskifréttir - 21.09.1984, Qupperneq 49
föstudagur 21. september
49
Rekstrartækni hf.
Eina ráðgjafarfyrirtækið sér-
hæfit í launah vetj anadi kerfium
Fyrirtækið Rekstrartækni s. f. er
fyrir löngu orðið vel þekkt í fisk-
iðnaðinum á fslandi, en frá upp-
hafi fyrirtækisins 1972 hafa þeir
Gísli Erlendsson og Kristján Sig-
urgeirsson lagt megináherslu á
ráðgjöf til þessa þáttar atvinnulífs-
ins.
„1 árslok 1972 gerðum við samn-
ing um IBM-tölvu og urðum fyrstir
til að nota tölvu við fiskiðnaðinn
hér,“ segir Gísli Erlendsson í við-
tali við Fiskifréttir. „Próunin í
tölvutækninni var hæg og tók ekki
stökk fyrr en 1978.“
í dag er Rekstrartækni með 32
manns í vinnu. Fyrirtækið skiptist
í tvo meginþætti, tölvudeild og
tæknideild.
Tölvudeidlin sér um tölvu-
vinnslu, t. d. bókhald og bónusút-
reikninga, reikninga á framlegð og
fleira. Annars sagði Gísli að það
færðist stöðugt í þá átt að fyrirtæk-
in önnuðust sjálf tölvubókhald á
eigin skrifstofum á eigin tölvur, en
ráðgjöf í kaupum á þeim búnaði
og aðstoð við uppsetningu og
rekstur þess hugbúnaðar sem þarf
veitir Rekstrartækni í auknum
mæli.
Á vegum Rekstrartækni var
komið á fót merkilegu samstarfi
þeirra fyrirtækja, sem skipta við
fyrirtækið. Það var 1977 að mis-
munandi fyrirtæki í fiskiðnaði tóku
að bera saman bækur sínar og fara
yfir tölur hvers annars. Þetta
reyndist gefa góða raun, menn
lærðu mikið á þessum samanburði.
í fyrstu voru menn nokkuð hikandi
við þetta, en nú er þetta gert
reglulega og hittast menn frá 10-12
fyrirtækjum reglulega einu sinni í
mánuði og ræða fram og aftur um
ýmis vandamál sem upp koma.
Þetta samstarf hefur vakið mikla
athygli, ekki aðeins hér á landi
heldur og erlendis.
Tæknideildin hjá Rekstrartækni
er í stöðugri aukningu. Hún sér
um hverskonar almenna rekstrar-
ráðgjöf, lay-outgerð (vinnslurásir)
fyrir frystihús, forritunargerð fyrir
hverskonar tölvubúnað, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Á þessu ári hefur Rekstrartækni
s.f. haft hönd í bagga með upp-
byggingu átta frystihúsa. Fyrirtæk-
ið gerir þá tillögur um ýmsar
úrbætur, ræðir við forráðamenn
um óskir þeirra og kröfur, og
annast útboð á búnaði og tækjum,
fylgist með smíði og uppsetningu
tækja og innréttinga. Við gang-
setningu húsanna útbýr Rekstrar-
tækni s.f. staðaltíma fyrir bónus
og sér um ákveðna verkkennslu.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í af-
kastahvetjandi launakerfi, leið-
andi ráðgjafarfyrirtæki í þeim
efnum.
Til þessa hefur einkum verið
unnið fyrir frystihúsin en núna er
farið að vinna í auknum mæli fyrir
rækjuvinnslurnar á sama hátt.
Hjá Rekstrartækni er nú verið
að vinna við nýtt staðaltímakerfi
fyrir landið allt og er það væntan-
legt á markaðinn upp úr næstu
áramótum. Með í vinnslu og út-
færslu á hinu nýja kerfi hafa bæði
SÍS og SH tekið þátt, auk verka-
lýðshreyfingarinnar. Ekki kvaðst
Gísli að svo stöddu geta úttalað sig
um þetta kerfi, en það mundi
vekja mikla athygli þegar það yrði
kynnt.
Á íslensku Sjávarútvegssýning-
unni mun Rekstrartækni s.f. verða
með tölvubúnað, IBM 36, eins og
hefðbundin frystihús nota í dag.
Við þessa vél verður tengd IBM
einkatölva.
„Við ætlum að leggja áherslu á
að kynna tölvukerfin okkar fyrir
fiskiðnaðinn og ætluð eru IBM 36
tölvunni. Þetta eru bónuspró-
grömm, framlegðar, afla og
birgðabókhaldsprógrömm, auk
nýs launabókhaldskerfis. Þá verð-
um við með fjárhagsbókhald fyrir
IBM PC einkatölvuna og hug-
myndir okkar um launabókhald
fyrir minni fiskiðnaðarfyrirtækin,
sem geta notað einkatölvuna í
þessu skyni. Þá munum við reyna
að höfða til útlendinganna með
vinnslukerfinu frá Vélsmiðjunni
Kletti í Hafnarfirði, en það tengist
vigtunum sem Marel og Póllinn
framleiða," sagði Gísli að lokum.
Gísli Erlendsson framkvæmdastjóri
á skrifstofunni sinni.
ÚTGERÐARMEIVIV - S.IÚMEW