Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 59
föstudagur 21. september
59
Plasteinangrun hf•:
Plastkassi framtiðar-
innar og trollkúla
fyrir djúpsævi
Hvernig lítur „fiskikassi framtíð-
arinnar“ út? Þessari spurningu æti-
ar Plasteinangrun h.f. á Akureyri
að reyna að svara á sýningunni í
Laugardalnum. Hvort þessi kassi
er minni eða stærri en sá hefð-
bundni, öðru vísi í lögun, eða úr
öðrum efnum, skal ósagt látið.
Þetta kemur í ljós á sýningunni.
Sigurður Jóhannsson sölustjóri
Plasteinangrunar sagði í viðtali við
fréttamann Fiskifrétta að vitaskuld
yrðu hinir hefðbundnu fiskikassar
verksmiðjunnar á sýningunni, 70
og 90 lítra PERSBOX-fiski-
kassarnir, sem allir þekkja, enda
fátt um annars konar kassa í gangi
að manni sýnist.
En vindum okkur í fréttnæmar
nýjungar frá Plasteinangrun. Ný
trollkúla, gerð 2080, verður kynnt
á sýningunni. Þessi kúla er nokkuð
óvenjuleg og hefur verið hönnuð
af heimamönnum á Akureyri eftir
umræður við skipstjórnarmenn og
netagerðarmeistara. Staðreynd er
að nú á dögum sækja skipin dýpra
og dýpra. Við þetta eykst mjög
álag á bobbinga og trollkúlur.
Þessar nýju kúlur taka mið af
þessu aukna álagi. Gaterígegnum
miðja kúluna sem fest er gegnum
gatið í höfuðlínu. Þetta er algjör-
lega kúlulaga kúla með tveim eyr-
um sitthvoru megin og eru þau
sterkiega byggð úr massívu plasti.
Venjulegar trollkúlur verða fyrir
miklum þrýstingi á dýpi, en hin
nýja tekur mið að veiðum á dýpra
hafi, þrýstingurinn á að jafnast á
alla kúluna og evrun halda vel. Að
sögn Sigurðar á kúlan að þola 1800
metra dýpi án þess að láta á sjá.
Nýja 2080-kúlan hefur verið
reynd af Akureyrartogurunum og
reynst hið besta Það er staðreynd
að enda þótt plastið sé sterkt, þá
má einnig ofbjóða því efni cins og
öðrum. Þannig getur það orðið,
þegar veitt er á miklu dýpi að
kúlurnar verða fyrir ójafnri
spennu, ójöfnu álagi. Við þrýst-
ingsbrevtinguna getur myndast
ákveðin þreyta við síendurtekna
spennu á sama flötinn, síðan
sprungur, sem varla verða greind-
ar með berum augum. en eru jafn
hvimleiðar fyrir því. Með nýju
kúlunni vona þeir hjá Plastcin-
angrun að framleidd hafi verið hin
rétt trollkúla fyrir djúpsjávarveið-
ar.
Með Plasteinangrun mun Oddi
h.f. á Akureyri sýna kassaklær og
ýmsan búnað í móttöku fiskiðju-
vera. Einnig mun Per Strpmberg
sýna ákveðna vöruþróun í kassa-
framleiðslunni, en mikið og gott
samstarf er milli hans og Plastein-
angrunar h.f. eins og menn eflaust
vita.
Sigurður Jóhannsson sagði að
lokum að sér virtist greinilegt að
umgengni um kassana, bæði til
sjós og lands, væri núorðið mun
betri en gerðist í fyrstu. Menn
vissu að plastkassi er verðmæti og
á skilið að meðhöndlast samkvæmt
því.
' " Mfe*
rfíír trrí :o--
Arlega tlyiur Plasteinangrun hf. tugþusundir kassa a erlendan markaö.