Fiskifréttir - 21.09.1984, Síða 66
66
föstudagur 21. september
ALPHA DIESEL - ÖM í
Nafnið Alpha hefur verið sam-
tengt hagnýtum og áreiðanlegum
vélum fyrir smærri skip; fiskibáta,
dráttarbáta, ferjur og strandferða-
skip, síðan frá aldamótum. Orðstír
Alpha stendur föstum fótum enn í
dag, en Alpha vélar spanna nú yfir
miklu stærra aflsvið og eru notaðar
í allar stærðir skipa.
Fyrir um það bil 50 árum varð
Alpha dótturfyrirtæki Burmeister
og Wain, hinna frægu dieselvéla-
framleiðenda- í Kaupmannahöfn.
Nýlega sameinaðist B&W diesel
M.A.N. samsteypunni, öðru leið-
andi fyrirtæki á sviði dieselvéla-
framleiðslu, en fyrstu tilraunir Dr.
Rudolph Diesels fóru einmitt fram
hjá M.A.N. í Augsburg.
Framtíðarþróun fjórgengisdies-
elvéla er nú í höndum hinnar
þrautreyndu hönnunardeildar
M.A.N.en Alpha í Frederikshavn,
heldur áfram hönnun á niður-
færslugírum, skrúfuútbúnaði, fjar-
stýribúnaði og öðrum búnaði fyrir
fullkominn aðalvélabúnað.
Þetta fyrirkomulag tryggir
stöðuga framþróun að því marki,
sem þeir hafa sett sér, að framleiða
hagkvæmar, traustar og end-
ingargóðar skipsvélar.
Nú, eins og áður, standa kostir
Alpha aðalvélabúnaðir fyrir sínu.
Hugleiðið eftirfarandi:
* Alpha aðalvélabúnaður er fram-
leiddur af sérfræðingum, sem
vinna hver á sínu sviði við
framleiðslu á dieselvélum,
gírum, skiptiskrúfum, fjarstýri-
búnaði og samtengingu þessa
alls, sem einnar heildar, undir
sama þaki.
* Að sérfræðileg ráðlegging
Alpha í sambandi við aðalvéla-
búnað er byggð á aldar reynslu
í hönnun og framleiðslu.
* Einstöku hlutar í Alpha aðal-
vélabúnaðinum eru valdir af
sérfræðingum Alpha til að ná
hámarks notagildi.
* Titringssnúningsvægi er reiknað
fyrir allan aðalvélabúnaðinn í
einu og titringseyðar og sveigj-
anlegir liðir gerðir í samræmi
við það.
* Allir hlutir aðalvélabúnaðarins
eru valdir og prófaðir af einum
framleiðanda, en það er enn
frekari trygging fyrir fullkomn-
um aðalvélabúnaði.
* Skiptiskrúfan frá Alpha er
þekkt fyrir öryggi og notagildi.
Fastar skrúfur fást einnig með
Alpha aðalvélabúnaði.
★ Þegar skipt er við Alpha útilok-
ast öll vandamál vegna sam-
ræmingar milli framleiðenda.
★ Einn framleiðandi.
Einn þjónustuaðili.
Einn ábyrgðaraðili.
Hið stöðuga markmið Alpha, er
að gefa viðskiptavinum sínum rétt-
an aðalvélabúnað miðað við
þarfir. Vegna hins háa eldsneyt-
isverðs eru gerðar æ meiri kröfur
til sparnaðar og þess vegna lögð
sérstök áhersla á eftirfarandi
kröfur:
* Aukinn eldsneytissparnað dísil-
vélarinnar.
* Aukna nýtingu skrúfunnar.
M.A.N./Alpha
Af fjölmörgum aðalvélabúnuðum
sem Alpha framleiðir kynnum við
nú á Sjávarútvegssýningunni nýj-
asta aðalvélabúnaðinn; M.A.N./
Alpha sem samanstendur af:
* M.A.N., gerð D 2542 MLE,
520 HÖ.
* Niðurfærslugír 1800/300 s/mín.
* Skiptiskrúfa
* Fjarstýribúnaði, aðvörunarbún-
að.
Kostir þessa aðalvélabúnaðar eru:
* Stutt og lágrýmd vél, með
ábyggðum niðurfærslugír.
* Ný hönnun á skiptiskrúfu sem
er til þess gerð að ná hárri
nýtingu við lágan snúnings-
hraða.
* Útilokun á tímafrekum sam-
ræmingarvandamálum, þar sem
allir hlutarnir koma frá einum
og sama framleiðanda.
* Einn framleiðandi.
Einn þjónustuaðili.
Einn ábyrgðaraðili.
Yélin
* Bein eldsneytisinngjöf með
M.A.N. kveikjukerfinu, sem
gefur mjög háa hitanýtingu.
* Hár meðalþrýstingur, sem þýðir
hámarks orkuframleiðslu innan
hinna gefnu kraftlína.
* Lágur kveikjuþrýstingur, sem
þýðir litla vélarþyngd og þar
með tilsvarandi aukningu á
burðargetu skipsins.
* Lítill hávaði, vegna hins hóflega
þrýstings í strokkunum.
* Lágur viðhaldskostnaður, sem
ekki síst er fenginn með því að
það næst auðveldlega til allra
hluta, sem eftirlit þurfa og stilla
þarf.
* Allar vélarnar eru byggðar eftir
staðli með tilliti til flokkunar-
félaga.
Nidurfærslugírinn:
* Innbyggð kúpling.
* Innbyggður „servo - motor“
fyrir skiptingu.
* Innbyggð þrýstilega.
* Aukaaflúttök.
Skiptiskrúfubúnaður-
inn:
* Fullkomin nýhönnuð 4ra blaða
skiptiskrúfa.
* Fáir slitfletir í skrúfuhaus.
* Olíufyllt stefnisrör með hvít-
málmsfóðringum.
* Stefnisrör sett í aftanfrá.
* Fastur-eða stýrisskrúfuhringur.
Fjarstýri- og aðvörunar-
búnaðurinn:
* Einföld stjórnun, sem krefst
sem minnstrar athygli stjórn-
andans.
* Auðskildar og nauðsynlegar
upplýsingar á áberandi stað.
* Lágmarkskrafa um rými, sem er
nauðsynlegt í hinu þrönga stýr-
ishúsi nútíma skipa.
* Einföld uppsetning, í grundvall-
aratriðum ein kapaltenging og
tveir vírar úr stýrishúss-stjórn-
borðinu til vélarrúmsins.
* Hámarks áreiðanleiki, og við
bætist notkun sterkra og þaul-
reyndra hluta, jafnframt 24 V.
D.C. rafstraum.
Fjarstýritækin eru:
* Tvö handföng til stjórnar á
snúningshraða vélar og skipti-
skrúfu.
* Mælaborð í stýrishúsi, sem er
með mæla fyrir snúningshraða
vélar, smurolíuþrýsting, skol-
loftsþrýsting, kælivatnshita, af-
gashita, olíuþrýsting á gír,
þrýstihnappa fyrir kúplingu og
þrýstihnapp til neyðarstöðvunar
á vélinni. Aðvörunarmerki
ásamt ljósum vegna minnkandi
smurolíuþrýstings og gírolíu-
þrýstings og hækkandi kæli-
vatnshita.
* Stjórnkassi í vélarrúmi með
aðalrofa, gangsetningarrofa,
þrýstihnapp til þess að útiloka
aðvörunarmerki meðan á gang-
setningu stendur, tímateljara og
mæla fyrir smurolíuþrýsting og
gírolíuþrýstng.
Alphatronic
Einnig sýnum við nýhannaðan
fjarstýribúnað fyrir hina velþekktu
Alpha aðalvélabúnaði, þ. e. a. s.
Alpha L/V-23 og L/V-28.
Yerið velkomin í
Bás 120
MAN-B&W
dísilvélar sf.
Barónstíg 5
Sími 11280 - 11281
* M.A.N., gerð D 2542 MLE, 520 HÖ. * Nið urfærslugír 1800/300 s/mín.
* Skiptiskrúfa * fjarstýribúnaður, aðvörunarbúnaður.