Fiskifréttir - 21.09.1984, Blaðsíða 69
föstudagur 21. september
69
Skeljungur hf.s
Stef nt að auknu sam
starfi vii vélstjóra
Baldvin Thorarensen hjá Olíufélaginu Skeljungi.
„Við hjá Skeljungi ætlum að vekja
sérstaklega athygli á skipaþjón-
ustu fyrirtækisins á sjávaraútvegs-
sýningunni í Laugardalshöll. Þar á
meðal kynnum við nýtt eftirlits-
kerfi með smurolíu, sem við von-
um að verði til hagsbóta fyrir
viðskiptavini okkar,“ sagði Bald-
vin Thorarensen, umsjómarmaður
skipa- og útvegsþjónustu Skelj-
ungs í viðtali við Fiskifréttir.
„Okkar hlutverk er að veita
viðskiptamönnum þá tæknilegu
þjónustu sem þeir óska og talið er
eðlilegt að láta í té á hverjum
tíma. Þar á meðal aflmælingar á
vélum fiskiskipa.
Stefnt er að því að hafa beint
samband eftir því sem við verður
komið við viðskiptavini félagsins
með kerfisbundnum heimsóknum
og stuðla þannig að því að þeim sé
veitt eins góð þjónusta og kostur
er“, sagði Baldvin aðspurður um í
hverju skipaþjónustan væri fólgin.
„Við viljum auka sambandið
við vélstjórana sjálfa. Komi upp
einhver vandamál hjá þeim, geta
þcir leitað til ráðgefandi aðila hjá
Skeljungi. Það gerist meðal annars
þegar verið er að gera smurkort
fyrir vélbúnaðinn“.
Skipaþjónusta Skeljungs sér
einnig um vörudreifingu og reynt
er að útvega allar viðhaldsvörur
sem þörf er á og olíu.
Shell RLA er nafnið á hinu nýja
eftirlitskerfi sem Skeljungur er að
koma á fót hér á landi. RLA
stendur fyrir „Rapid Lubricant
Analysis“ og er fólgið í rannsókn-
um á notaðri smurolíu. RLA er
ætlað að auka öryggi þeirra sem
stjóma vélum og greina bilanir á
allra fyrstu stigum. Þá má ætla að
slíkt eftirlit gæti bætt nýtingu
olíunnar.
í stuttu máli er framkvæmd
þessarar rannsóknar með eftirfar-
andi hætti. Tekið er 40 cl sýni af
vélarolíu og sett í sérstakar um-
búðir, sem fáanlegar eru hj á skipa-
þjónustu Skeljungs. Það er sent í
flugpósti til næstu rannsóknarstofu
Shell. Sendingartími er aðeins 5
dagar að meðaltali. Olían er rann-
sökuð sama dag og hún berst til
rannsóknarstofunnar.
Tölva með upplýsingum um við-
komandi skip vinnur úr niðurstöð-
um mælinganna og sýnir strax ef
eitthvað er óeðlilegt við olíuna,
sem getur síðan bent til þcss að
eitthvað sé að vélinni.
Niðurstöður rannsóknarinnar,
ásamt ráðleggingum um hvernig
bregðast skuli við þeim eru sendar
á telexi til skipaþjónustu
Skeljungs, sem kemur þeim tafar-
laust á framfæri við skipafélagið
og yfirvélstjórann.
Þegar eitthvað er að, koma
20-30 atriði til athugunar um
hvernig við því skuli brugðist.
Þetta miðast allt við að vélstjórinn
geti fylgst með ástandi vélar og
einnig því að stuðla að fullnýtingu
olíunnar. Efnasamsetning olíunn-
ar getur leitt í ljós hvort og hvar
vél slitnar og þá jafnframt hvað er
farið að gefa sig.
Helstu kostir SHELL RLA eru:
Það veitir meiri upplýsingar um
ástand mála en önnur kerfi sem
verið hafa í notkun, þar á meðal
um málma í olíunni.
Það þarf miklu minna sýnishorn.
Skeljungur leggur fram ílát,
merkimiða og umslög.
Skýrslugerð öll verður hrað-
virkari vegna tölvunotkunar.
Skipt er við aðeins eina rann-
sóknarstofu, sem tryggir að allar
upplýsingar fara inn, í einn
heimildabanka. Hægt er að hagn-
ýta sér upplýsingar tölvunnar um
nákvæmlega hliðstæðar vélar o. s.
frv.
Framsetning upplýsinga er ein-
föld og þær koma fljótt. Baldvin
sagði að Skeljungur losaði skip við
úrgangsolíu. Það hafa verið gerðar
kröfur af hálfu Siglingamálastofn-
unar um að safna henni allri saman
og það er bannað að setja hana í
sjóinn.
„Við veitum allar upplýsingar
sem við getum. Það er okkar
hlutverk að veita upplýsingar og
þjónustu til að viðskiptavinir okk-
ar séu ánægðir og nái að reka skip
sín á sem allra hagstæðastan hátt“,
sagði Baldvin Thorarensen að
lokum.