Fiskifréttir - 21.09.1984, Side 72
FRÉTTIR
föstudagur 21. september
HEMPEL’S
DYNAMIC 7628
TROPIC 7644
NORDIC 7133
Botnmálningar
fyrirþá sem
gera kröfur.
Nýtt fiskirann-
sóknarskip hjá
Bretum á næstunni
Verið er að hanna nýtt fiski- og
hafrannsóknarskip hjá Bretum og
á það að verða tilbúið árið 1986.
Rannsóknarstofnun fiskiðnað-
arins er að hyggja að smíði nýs
rannsóknarskips í stað skipsins
Clione, sem hleypt var af stokkun-
um 1961 og þykir orðið of gamalt
og úrelt. Nýja skipið verður búið
öllum nýjustu og fullkomnustu
tækjum til fiski- og hafrannsókna
og verður þá annað skipið, ásamt
Cirolana og komi í stað Corella og
Fellina á næstu þrem árum. Skipið
er hannað af skipaverkfræðingun-
um Burnett og Corlett. Það verður
51 m langt og að mestu hannað
eins og skuttogari. Það á að geta
athafnað sig á höfunum umhverfis
Bretlandseyjar og eins langt vestur
á bóginn og landgrunnið nær. Gert
er ráð fyrir, að hver ferð taki 3
vikur. Diesel-rafmagnsvélar verða
í skipinu og verða þær þannig
útbúnar að þær séu sem hljóðlát-
astar. Annað atriði í hönnun er,
að skutþilfarið nái nokkuð fram
fyrir miðja stjórnborðssíðu, svo
að þar verði gott rými fyrir rann-
sóknartæki af ýmsum toga. Aðal-
rannsóknarstofurnar verða bak-
borðsmegin. Þá er þar og gert ráð
fyrir, að hægt sé að koma þar fyrir
hreyfanlegum rannsóknarstofum
rétt hjá hinum.
í skipshöfninni verða 6 yfir-
menn, 13 hásetar og aðstoðar-
menn og sex vísindamenn, allir í
eins manns klefum.
Enda þótt vonast sé til að skipið
geti tekið til starfa 1986, er enn
eftir að ganga frá ýmsum atriðum
á æðri stöðum.
(Fishing News, júlí 1984)
ÞriSji spænski togar-
iirn iekitm í breskri
hnáelgi á Ireim vikum
Enn hefur einn spænskur togari
verið tekinn að ólöglegum veiðum
í breskri landhelgi, sá þriðji á
tveim vikum.
Skipið hafði takmarkað leyfi til
veiða í landhelginni. Elér var um
að ræða togarann Versalles -1, og
var skipstjórinn dæmdur fyrir
dómstóli í Falmouth í 4500 sterl-
ingspunda sekt (um 185.000 ísl.
krónur). Skipverjar á breska varð-
skipinu Leed Casle fóru um borð í
togarann til að athuga um afla.
Fundu þeir þá yfir leyfilegu magni
bæði af þorski, ýsu, kolmunna og
ufsa. Verjandi skipstjórans fór
fram á mildun dómsins, þar sem
skipið var með löglega möskvast-
ærð í vörpu, en það mun ekki hafa
verið verið tekið til greina.
Þetta er í annað skipti á einni
viku, sem Leeds Casle tekur tog-
ara í landhelgi og skipherrann að
þessu sinni var Nick Osmaston,
sem hafði tekið við skipinu daginn
áður.
(Fishing News, ágúst 1984)
Það er ekki verra að skoða saltfiskinn vel. Á handbragði Einars Jóhannssonar má sjá, að hann lætur ekkert
fara fram hjá sér. Einar er nú að mestu hættur að meta saltfisk sjálfur, þar sem hann hefur verið skipaður
forstjóri Ríkismats sjávarafurða.
Engar horfur á
minna atvinnu-
leysiíEBE-
löndunum
Aðeins dró úr atvinnuleysi í Efna-
hagsbandalags-löndunum í júní
vegna sumarvinnu skólafólks. Þá
voru samtals 12 millj. atvinnulaus-
ir, eða 10,4% af fólki á vinnumark-'
aði. í maí voru 12,2 millj. atvinnu-
lausir. Á síðasta ári hefur atvinnu-
leysi aukist um 5,5%, og ber meira
á því hjá konum en körlum.
Þá er atvinnuleysi meira hjá
fólki innan 25 ára aldurs, eða um
37,5%. í írska lýðveldinu (Eire)
voru 16,6% án atvinnu í júní,
14,6% í Hollandi og 13,4% í
Belgíu.
Ástandið var ívið betra í Vestur-
Þýskalandi, en þar voru 7,8% án
atvinnu og 9,4% í Frakklandi.
(Fiskaren, ágúst 1984)
/*% TrU
\Jk Hone
brýni
NETASALAN HF.
þvotta
NETASALAN HF
NETASALAN HF
KLAPPARSTÍG 29, 101 REYKJAVÍK, S. 24620
KLAPPARSTÍG 29,101 REYKJAVIK, S. 24620
KLAPPARSTÍG 29, 101 REYKJAVIK, S. 24620