Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Blaðsíða 15

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Blaðsíða 15
13 Þessi tvö s. 1. ár hafa verið mjög slæm kartöfluár hér um slóðir, vegna næturfrostanna sem komið hafa á miðjum vaxtartíma. Uþpskera hefur því verið mjög lítil af flatareiningu, þótt uppskeran hafi verið nokkuð misjöfn eftir legu garðanna. 1951 var heildaruppskeran um 120 hkg, en 1952 um 90 hkg. 1951 var ekki tekið upp úr 1/4 af garð- landinu og 1952 var í 1/2 garðlandsins minna lieldur en niður var sett. Bæði árin var kartöflulandið um 1.5 ha. 1952 var sáð rófum í um 4000 fermetra og spruttu þær sæmilega. Skemmdir af kálmaðki voru mjög litlar. Púðrað var einu sinni með Gessaról. Flestar matjurtir náðu sæmilegum þroska 1951, s. s. hvítkál, blómkál, gulrætur, rauðrófur, næpur og salat, en 1952 náðu gulrætur og rauðrófur mjög litlum þroska, hvítkál varð einnig mjög lélegt og sömu- leiðis blómkál. Gerð var athugun með arfaolíu (Esso Witkiller) til útrýmingar ill- gresi í gulrótum bæði árin. Virðist mér að með notkun arfaolíu auð- veldist verulega hirðing gulrótanna, en til þess að halda illgresi alger- lega í skefjum með arfaolíunni einni saman þarf að sprauta henni yfir nokkrum sinnum og ekki er ég óhræddur um að hver sprautun dragi nokkuð tir vexti gulrótanna fyrst á eftir. Einkum virtist þetta koma fram í sumar. Arfaolían er nokkuð dýr ef sprauta á oft yfir sama stykkið, en beztur árangur virðist mér af fyrstu sprautuninni áður heldur en grisj- að er. Undanfarin tvö ár hefur verið gerð athugun á verkunum gessaról, til varnar kálmaðki í hvítkáli og blómkáli. Púðrað hefur verið með 8—10 daga millibili yfir aðal varptíma flugunnar, en ekki hefir tekizt að hindra það að flugan næði að verpa og þrátt fyrir endurtekna púðr- un, með gessaról hefur kálmaðkurinn verið mjög skæður einkum í blómkálinu. Aftur á móti virðist mér, að með þvi að vökva tvisvar til þrisvar sinnum með súblimatvatni megi að miklu leiti koma í veg fyrir eyðileggingu af völdum kálmaðksins í hvaða ári sem er. d. Grastegundir og frœblöndur. Vorið 1952 var byrjað á tilraunum með einstakar grastegundir og nokkrar fræblöndur. Einstökum grastegundum var sáð í 20 ferm. reiti með fjórum endurtekningum, og grasfræblöndurnar eru líka í 20 ferm. reitum, en með 7 endurtekningum. Reitirnir eru 2 X1 m og komið fyrir eftir raðaaðferðinni. Sáð var 26. júní. Tilraunalandið er flagmói leirkenndur, sem bi'iið var að forrækta í eitt ár með hafra grænfóðri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.