Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Blaðsíða 14
12
engir samreitir voru hafðir, og uppskerureiturinn aðeins 5 fermetrar.
Heyprósentan var um 30 af hávingli og vallarsveifgrasi.
Þá var tekið af hávingli og vallarfoxgrasi fræ á álíka stórum reitum,
og virtist það við uppskeru vera sæmilega þroskað, en við rannsókn á því
var 1000 korna þyngd á hávingul 8 gr. og 2 gr. af vallarfoxgrasi. Gró-
magnið var því sem næst ekkert, eða 1.5% af hávinglinum og 0.4% af
vallarfoxgrasinu. Hver ástæðan var fyrir því, að gæði fræsins reyndust
svo lítil, veit ég ekki, nema ef vera kynni að kuldarnir 12.—13. ágúst 1951
liafi eyðilagt spírunarhæfni þess, en þó mætti ætla, að það hefði þá einnig
átt að koma frarn á korninu.
Arið 1952 var sáð eftirgreindum tegundum í afbrigðatilraunir. Stærð
reita var 20 m2. Samreitir voru fjórir.
Sáð: Skriðið: Skorið:
Dönnesbygg 19/5 6/8 Þroskaðist ekki
Flpjabygg 19/5 6/8
Eddabygg 19/5 12/8
Sigurkorn 19/5 12/8 -„-
Herta Kárn 19/5 25/8
Vorhveiti (sænskt) . 19/5 30/8 -„-
Niðarhafrar 19/5 25/8
Sv.orion 19/5 25/8 -„-
Same hafrar 19/5 25/8
í frostunum 27. og 28. ágúst eyðilagðist möguleiki kornsins til kjarna-
myndunar, því frostið kom á versta tíma. Öxin hvítnuðu og visnuðu
eftir þessar frostnætur. Annars var að sjálfsögðu fyrir löngu augljóst að
þroskun var útilokuð þetta sumar, þar sem engin tegundin skreið fyrr
en komið var nokkuð fram í ágúst.
c. Garðrœktin.
Tilraunastöðin hefur eins og að undanförnu haft á hendi stofnrækt-
un á kartöflum fyrir Grænmetisverzlun ríkisins, af afbrigðunum Rauð-
ar íslenzkar, Skán og Ben Lomond.
Selt var stofnútsæði, sem hér segir:
Rauðar ísl.
1951 .... 35.0 hkg
1952 .... 47.5 hkg
Skán Ben Lomond
17.0 hkg 0.0 hkg
10.5 hkg 13.0 hkg
L