Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Blaðsíða 51
4!)
Ein áburðartilraun var gerð sumarið 1951 á Geitasandi á Rangár-
völlum á graslendi fullgrónu, þar sem túnvingull, sveifgrös og vallarfox-
gras voru ráðandi jurtir. Jarðvegurinn var áður örfoka malarsandur,
mjög ófrjór, en sáð var þar árið 1950 blöndu af fyrrnefndum grastegund-
um. Tilraunin er gerð í sumri, sem var sérstaklega þurrviðrasamt, og
auðsjáanlega hefur vatnsskortur hamlað mjög sprettu. Áburðinum var
dreift 8. júní, en slegið var 29. ágúst. Tilraunin er með vaxandi köfnunar-
efni. Grunnáburður var 60 kg K og 80 kg P. Árangurinn fer hér á eftir:
Uppskera hey hkg/ha
Tilraunaliðir 1951
a. Ekkert N ..................... 0.0
b. 60 kg N ..................... 9.9
c. 90 kg N .................... 12.8
d. 120 kg N .................... 10.3
Þar sem ekkert var borið á af köfnunarefni, varð engin uppskera
þrátt fyrir kalí og fosfóráburð, og sýnir það Ijóslega, hve jörðin var ófrjó,
því að á venjulegum jarðvegi gefur áburðarlaust alltaf dálitla uppskeru.
Uppskeran fyrir N-áburðinn er mjög lítil og langt fyrir neðan það, sem
venjulega fæst fyrir tilsvarandi áburð, til dæmis á móa- eða valllendistúni.
Þessi tilraun sýnir, hve mögur sandmalarjörð er og óörugg til túnræktar,
ef miklir þurrkar ganga. Þess má geta, að áburðinum var dreift seint, og
sennilega hefði fengizt meira fyrir áburðinn, ef honum hefði verið dreift
þremur vikum fyrr, en reynslan hefur sýnt, að nauðsynlegt er að bera
nokkru fyrr á sandjörð en hér hefur verið gert.
Endurrœktunartilraun. Nr. 10, 1950.
Tilraunin er gerð á 16 ára gömlu harðvellismóatúni, með alinnlend-
um gróðri að mestu leyti: Sveifgrösum, vingli og língrösum.
Tilraunaliðir:
a. Tún óhreyft í 24 ár, 18 snrál. búfjáráburður 3. hvert ár.
b. Tún plægt 6. hvert ár, 36 smál. búfj.áb. plægður niður 6. lnert ár.
c. Tún plægt 8. hvert ár, 48 smál. búfj.áb. plægður niður 8. hvert ár.
d. Tún plægt 12. hvert ár, 72 smál. búfj.áb. pl. niður 12. hvert ár.
4