Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Blaðsíða 17
15
Vallarsveifgras ........... 15%
Túnvingull................. 15%
Línsveifgras ............... 5%
Blanda 5. Vallarsveifgras ............ 30%
Túnvingull................. 35%
Línsveifgras............... 25%
Rýgresi ................... 10%
Blanda 6. Vallarfoxgras............... 24%
Vallarsveifgras ........... 16%
Túnvingull................. 16%
Línsveifgras............... 12%
Axhnoðapuntur.............. 12%
Hvítsmári ................. 20%
Blanda 7. Vallarsveifgras ............ 24%
Túnvingull................. 28%
Línsveifgras............... 20%
Axhnoðapuntur............... 8%
Hvítsmári ................. 20%
Fræblöndunarreitunum fór vel fram og gras þeirra var þétt og jafnt,
nema þar sem háliðagrasið var mest. Reitir þessir voru heldur ekki
slegnir til vigtunar á uppskeru. Ekkert illgresi var í landinu.
Alegintilgangur með þessum fræblöndunartilraunum, er að fá upp-
lýsingar um hvaða grastegundir gefa mesta uppskeru sarnan í blöndu,
hvaða tegundir verða ráðandi þegar frá líður, hvaða blanda þolir bezt
veturinn og hver gefur aðgengilegast gras og hey.
Með því að liafa hverja einstaka grastegund, sem er í fræblöndun-
um, út af fyrir sig, fæst betra yfirlit um liæfni þeirra með tilliti til upp-
skeru, og þolni þeirra gegn vetrarkuldum og kali.
3. Yfirlit um tilraunir gerðar 1951 og 1952.
Hér á eftir verður birt yfirlit um tilraunir, með því að greina frá
uppskeru- og hlutfallstölum og auk þess verða með hverri tilraun skýr-
ingar á þeim atriðum, sem ástæða þykir til að geta um, í sambandi við
þetta bráðabirgðaryfirlit.
Við þurrkun á heyi af tilraunareitum er þeirri reglu fylgt hér á