Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Blaðsíða 37
35
af N-áburði á tún gildir, að landið er nokkuð sandblandið og þurrara.
Orsmáir kalblettir voru víða í tilraununum. Var sáð í þá alla strax um
vorið (á klaka), en samt varð arfinn á undan sáðgresinu, og var því tekið
það ráð, að slá snemma. Ekki þótti þó ráðlegt að taka þurrheyssýnishorn
úr fyrri slætti 1951, vegna hins mikla arfa. Vegna þurrkanna varð seinni
uppskera miklu minni en ella hefði orðið.
Samanburður á frætegundum við rcektun rhela.
a. SÍS-fræblanda 1951, b. Sandfax, c. Randagras. Sáð var 10. júlí.
Slegið vegna arfa 24. september. Þar sem mikill arfi var í tilrauninni,
þótti ekki tiltækilegt að halda henni áfram.
Samanburður á grœnfóðurtegundum.
Tilraun þessi misþroskaðist svo, vegna þurrkanna, að ekki þótti ráð-
legt að uppskera hana sem tilraun.
Samanburður á misrnunandi frceblöndum. Nr. 10, 1952.
Þetta er ný tilraun, og átti að sá í hana eins snemma og tök væru á,
en vegna þess, að tvær sendingar af smáragerlum misfórust á leiðinni úr
Reykjavík, varð dráttur á sáningunni, og þegar smitið loksins barst, varð
að bíða eftir kyrru veðri í nokkra daga, svo að ekki var liægt að sá í til-
raunina fyrr en 2. júlí. Kom fræið því of seint upp, til þess að það gæti
gefið uppskeru, þrátt fyrir vökvun. í september var kominn nokkurn
veginn jafn þeli á alla reitina, og verði tilraunin ekki fyrir áfalli í vetur
eða vor, ætti hún að gefa svar í sumar.
Samanburður á einstökum grastegunclum. Nr. 11, 1952.
Sama máli gildir um þessa tilraun og þá fyrri. Sáð var 2. júlí.
Samanburður á byggafbrigðum.
Sáð var 2. maí fjórum afbrigðum (Dönnesbyggi, Flöjabyggi, Sigur-
byggi og Eddabyggi). Þroskaðist ekkert þessara afbrigða þannig, að um
uppskeru yrði að ræða,
Samanburður á hafraafbrigðum.
Afbrigðin, sem reynd voru, voru Niðarhafrar og Svalöf Orion hafrar.
Útkoma varð sama og á ofanskráðri tilraun,
3