Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 19

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 19
17 Tilraun þessi er gerð á gamalræktuðu valllendistúni, og er ráðandi gróður túnvingull og sveifgras. Þá er og nokkur hvítsmáraslæðingur á landinu. Tilraunin var tvíslegin 1951 en einslegin 1952. Enginn raun- hæfur vaxtarauki er kominn fram fyrir fosfórsýruáburðinn enn þá. Kal- skemmdir voru töluverðar 1952, og varð því uppskeran minni af þeim sökum, þótt tíðarfarið réði að öðru leyti mestu þar urn. Tilraun með vaxandi skammt af kali. Nr. 3, 1950. Uppskera hey hkg/ha Meðaltal Áburður kg/lia 1951 a. 70 N, 70 P, 0 K........... 58.2 b. 70 N, 70 P, 40 K........ 61.9 c. 70 N, 70 P, 80 K.......... 64.8 d. 70 N, 70 P, 120 K....... 63.8 1952 þriggja ára Hlutföll 38.6 56.07 100 50.0 56.71 101 51.5 62.66 112 51.7 60.12 107 Tilraun þessi er gerð á sams konar landi og næsta tilraun á undan. Nokkur árangur virtist koma fram fyrir kalí strax á öðru ári, og 1952 er kalílausi liðurinn með töluvert minni uppskeru en liðirnir með kalí, b, c og d. Kalskemmdir voru töluverðar 1952, en náðu sér þó, er á leið sumarið. — Tilraunin var slegin aðeins einu sinni 1952, en tvíslegin 1951. Tilraun með samanburð á N-áburðartegundum. Nr. 5, 1945. Uppskera hey hkg/ha Meðaltal Áburður kg/ha 1951 1952 átta ára Hlutföll a. Enginn N-áburður........ 26.1 16.6 31.09 51 b. 224 amm.nitrat........... 55.5 52.5 61.42 100 c. 400 brst.súrt amm...... 39.7 36.8 54.60 89 d. 525 kalksaltpétur ....... 56.6 46.7 60.17 98 e. 164 amm.nitrat........... 48.8 35.4 51.15 83 Köfnunarefnisáburðurinn er hér gefinn upp í áburðarefnum, og svarar hann til 82 kg N hrein efni á b, c og d. Auk N-áburðar var borið á alla liði 54 kg P og 96 kg K. Innihald N-áburðartegunda var: Amm.nitrat 33.5% N, stækjan 20.5% N og kalksaltpéturinn 15.5% N. — Tilraunin var töluvert kalin bæði árin, en þó einkum 1952. Slegið var aðeins einu sinni 1952. C-liðurinn, stækjuliðurinn, hefur gefið mikið minni upp- skeru bæði árin, miðað við sama lið undanfarin ár. Ekki var hægt að telja að þessi liður væri verr farinn af kaU en hinir. Hins vegar munu kuldarnir ef til vill ráða þar nokkru um. 2

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.