Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 58

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1953, Side 58
56 að þakka, en hann var vel fúin mýrarjörð. Fyrra árið vorn belgjurtirnar grænar og óskaddaðar, þegar uppskera fór fram ,en síðara árið voru þær nokkuð siilnaðar af frosti, og varð því uppskerumagn ekki eins mikið af ha, eins og þar senr hafrar voru einir sér. Vaxtartíminn varð hlutfallslega 100 og 105 dagar hvort ár. Hliðstæðar tilraunir voru gerðar á Rangárvallasandi árið 1951, en þær gáfu miklu minni uppskeru af ha. Þar var það þó vaxandi magn af belg- jurtafræi með höfrum, sem beztan gaf árangurinn. Tilraunir í kartöflurækt. Áburðartilraunir. Árið 1948 var byrjað á tilraunum með köfnunarefnisáburðartegundir við kartöflurækt. Borið var jafnt af hreinu N af hverri tegund. Gullauga var notað í tilraunirnar öll árin, og reyndar voru fjórar tegundir áburðar. Tilraunirnar voru alltaf gerðar á fremur mögru mólendi, og forrækt var bygg til þroskunar. Áburður á ha á alla liði jafnt: 300 kg brennisteinssúrt kalí, 700 kg superfosfat, og var a-liður án köfnunarefnis, en b—e-liðir með jöfnu köfnunarefnismagni, eins og eftirfarandi yfirlit sýnir. — Meðaltal fimm ára: Tilraunaliðir Uppsk. hkg Sraælki % Hlutföll a. Kalí og fosfóráburður........................ 96.6 12.8 100 b. Kalí og fosf.b., 585 kg kalkamm.saltp. . . 155.8 11.3 161 c. Kalí og fosf.áb., 585 kg brst. amm. (4 ár) 158.2 10.6 164 d. Kalí og fosf.áb., 360 kg ammoniaks........ 147.9 11.0 153 e. Kalí og fosf.áb., 462 kg amm.súlfats. (3 ár) 138.2 9.7 143 Uppskeran er ekki mikil, og segir þar til, að jarðvegur hefur verið ófrjór, svo að meira áburðarmagn hefði þurft að gefa. Hins vegar sýnir tilraunin það, að brennisteinssúrt ammoniak og kalkanrmonsaltpétur eru beztu köfnunarelnisáburðartegundirnar, en hinar tvær ekki eins nýtileg- ar, þó að nothæfar séu. Af þeinr fimm árum, sem tilraunin hefur staðið, hafa þrjú árin gefið uppskeru yfir meðallag tilraunanna, en tvö árin hefur uppskeran orðið undir meðallagi. Árið 1950 var byrjað á tilraunum með vaxandi magn af tilbúnum áburði til kartöfluræktar, og voru tilraunirnar gerðar árin 1950 og 1951 á móajörð en árið 1952 á vel feygðri mýrarjörð. Efnahlutföllin í áburðar-

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.