Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1967, Page 45
Sandfellshagi 1963: 85.40 78.10 78.70 79.60
N.-Þing. 1964: 81.59 81.21 84.33 80.21
Meöaltal 2 ár: 83.50 79.66 81.52 79.91
Háls 1963: 68.80 70.80 72.80 70.30
S.-Þing. 1964: 78.55 84.89 90.29 94.04
Meðaltal 2 ár: 73.68 77.85 81.55 82.17
Hafralækur 1963 41.80 46.30 50.70 53.20
S.-Þing. 1964: 51.62 56.56 56.12 57.77
Meðaltal 2 ár: 46.71 51.43 53.41 55.49
Arnarvatn 1963: 19.40 25.00 28.50 34.90
S.-Þing. 1964: 15.71 20.91 27.20 40.26
Meðaltal 2 ár: 17.56 22.96 27.85 37.58
Á þessum dreifðu tilraunum var byrjað 1963 að frumkvæði dr. Bjarna
Helgasonar og hefur TiLraunastöðin á Akureyri haft framkvæmd þeirra.
með höndum.
Tilraunalandið á Lyngási er á nokkurra ára nýrækt, sem gerð er á
lyngmóalandi, sem er einkennandi fyrir Kelduhverfi. Jarðvegur er mjög
fínn og verður all harður og þurr í þurrkatíð.
I Sandfellshaga er tilraunin gerð á ungri nýrækt, á viðarmóajarðvegi
og sáðárið var borinn í landið allmikill húsdýraáburður og er landið
mjög frjósamt.
Á Hálsi er tilraunalandið á nokkurra ára nýrækt, gerðri á framræstri
mýri í nokkrum halla á móti austri. Húsdýraáburður borinn í landið sáð-
árið. Landið mjög frjósamt.
Á Hafralæk er tilraunin á nokkurra ára nýrækt, á lyngmóum, á Aðal-
dalshrauni og sums staðar er þar grunnt á kísilleir. Jarðvegur er fínn og
verður allharður og nokkuð þurr. Frjósemi tæplega í meðallagi.
Á Arnarvatni er tilraunin gerð á nýrækt, ræktaðri á holtajarðvegi,
mjög fínum og hörðum. Gróður mjög gisinn og frjósemi mjög lítil, enda
uppskera sára lítil, en hins vegar er svörun fyrir fosfóráburð mjög mikil.
Um þessar tilraunir verður ekkert sérstakt sagt, þar sem þær hafa
aðeins staðið í 2 ár. Ætlunin er að nota þessar tilraunir til áburðarleið-
beiningar við hliðstæð skilyrði.
43