Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1967, Síða 110
Efnagreining á uppskeru.
% af þurrefni.
1964. Akureyri, 6. ’55. P Ca Mg K Na
1. sl.: a 20 tn mykja 0.28 0.62 0.24 1.79 0.02
b 20 - — 40 N, 0.30 0.49 0.22 1.68 0.02
c 20 - — 80 - 0.32 0.44 0.24 1.63 0.08
d 20 - — 80 - + 60 P + 60 K 0.32 0.33 0.23 2.31 0.08
2. sl.: a 0.34 0.83 0.26 1.89 0.11
b 0.35 0.57 0.27 1.68 0.08
c 0.35 0.53 0.29 1.68 0.13
d 0.35 0.55 0.24 2.05 0.08
1964. Sámsstaðir, 8. ’51. 1. sl.: a 20 tn mykja, 41 N, 30 P, 30 K 0.28 0.25 0.19 2.47 0.06
b 20 - — 41 - 0.26 0.25 0.17 2.31 0.06
c 20 - — 41-1 ár, 2. ár, 75 N 0.19 0.29 0.22 1.79 0.06
2. sl.: a 0.28 0.36 0.22 1.79 0.06
b 0.27 0.36 0.22 1.95 0.06
c 0.22 0.38 0.22 1.63 0.04
Tilraunin á Akureyri, sem staðið hefur í 10 ár, sýnir mikinn vaxtar-
auka í b-lið eða um 19 hkg fyrir 40 kg N. Er það meiri vaxtarauki en
fram kom fyrir sams konar skammt í tilraun með grindatað á Skriðu-
klaustri. Annar 40 kg skammtur af N gefur hins vegar ekki nema um 9.5
hkg og kalí- og fosfórskammtarnir til viðbótar gefa engan vaxtarauka.
Tilraunin á Sámsstöðum er skipulögð svolítið öðruvísi en á Akur-
eyri. Þar er enginn hreinn mykjuliður og verður því ekki séð, hver er
vaxtaraukinn fyrir mykju eina saman. Eins og fram kemur af a-lið saman-
borið við b-lið, gefa steinefnin 30 P og 30 K næstum engan vaxtarauka og
er það sama niðurstaða og á Akureyri. C-liðurinn á Sámsstöðum sýnir,
að ekki er unnt að bæta upp 20 tn af mykju annaðhvort ár með 34 kg af
N-áburði og koma þannig fram í c-lið, að nokkru leyti, verkanir mykj-
unnar og vaxtarauki fyrir N-áburðinn.
Efnainnihald uppskeru á Akureyri sýnir eðlilegt magn af P, Ca og
Mg. Ennfremur verður ekki annað séð en að K sé nægilega mikið í a-, b-
og c-liðum, en eins og vænta mátti, eykst það í d-lið með tilkomu 60 K2O
auk mykjuskammtsins.
A Sámsstöðum er P-magnið mikið minna í c-lið, og nærtækasta skýr-
108