Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1967, Page 157
Þurrefni % Uppskera kart. hkg/ha
Sámsstaðir, 104. ’56: 1961 1961
a. Engin úðun 18.8 301.4 129.2
b. Úðað með NEW BLITANE
21.6 g duft í 6.5 lítr. vatns 17.0 318.1 116.7
c. Úðað með DITHANE M 45,
13 g duft í 6.5 lítr. vatns 17.0 300.0 123.6
1963: Áburður kg/ha: 2500 kg garðáburður, 10—12—15, NPK.
Afbrigði: Rya. Sett niður 5. júní. Tekið upp 17. september.
Jarðvegur: Skurðruðningur.
Uðað var í byrjun ágúst. Kartöflugras var ekki fallið, þegar tekið var
upp, en þó farið að láta á sjá.
Engin mygla fannst í landinu, hvorki í a- né b- og c-reitum.
1964: Áburður kg/ha: 1200 kg nitrofos (20% N, 20% P2O5) og 400 kg
brennist. súrt kalí.
Afbrigði: Rauðar íslenzkar. Sett niður 25. maí. Tekið upp 8. október.
Jarðvegur: Feygð mýri.
Uðað var í byrjun ágúst. Engin mygla fannst í landinu.
Aðal myglusvæðið hér á landi er Suðurland, Austur-Skaftafellssýsla
og Suðvesturland. Á þessu svæði þarf flest sumur að úða varnarlyfjum
gegn myglunni til að fyrirbyggja sjúkdóminn. Tilraunir með lyf gegn
kartöflumyglu eru því einungis framkvæmanlegar á fyrrgreindu svæði.
Ekki er vitað til þess, að kartöflumygla (Phytoptora infestans hafi valdið
skemmdum á kartöflum á Norður- eða Austurlandi.
Það varnarlyf, sem mest hefur verið notað undanfarin ár er Perinox,
sem er koparsamband, og hefur lyf þetta reynzt mjög vel.
Aazimag og Dithane, sem reynd eru í tilraunum á Sámsstöðum eru
Zineb-lyf (Fentinhydroxid) og hafa þau einnig reynzt vel, enda hið virka
efni koparsambönd eins og í Perinox.
155