Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Qupperneq 77

Storð : heimur í öðru ljósi - 01.03.1985, Qupperneq 77
Ólafur ostur, Ólafur smér, Ólafur huppur og síða; Ólafur lýgur, Ölafur sver, Ólafur stelur víða. Við stiklum yfir Þorstein matgogg í Pilti og stúlku Jóns Thoroddsen og sálu- félaga hans á öldinni sem leið og vindum okkur yfir í þá sem nú er að líða. Og hvernig skyldu þá mat- armál íslendinga horfa við rithöfund- um samtímans? Ég gef nú orðið Álf- grími Hanssyni, sögumanni í Brekku- kotsannál Halldórs Laxness, þar sem hann lýsir veisluföngum í boði því er hinn hálfdanski kaupmaður Gúðmún- sen hélt hinum meinta heimssöngvara Garðari Hólm til heiðurs, við upphaf þessarar aldar: Eftir þeirri einkennilegu aðferð sem höfð var á íslandi áður fyr ef átti að sýna rausn, þá var byrjað á því að veita gestum kaffi og sætabrauð á undan matnum. Má vera að siður þessi hafi verið leifar frá þeim tíma að eldsneyti var ekki tiltækt nema mór, og hann lítt eldfimur, svo gestir urðu oft að bíða eyktarlángt eftir steik og graut, og því óhjákvæmilegt annað en bera fram léttar veitíngar til að stilla sárast- an sult manna meðan beðið var. Hér var þó ekki seinlæti í eldamennsku til að dreifa, heldur fastheldni við fornan höfðíngjasið sunnan úr Vogum, og þegar menn höfðu gætt sér á pönnu- kökum, kleinum, jókaköku, tertu, vínirbrauðum og rúmlega tuttugu öðr- um sætabrauðstegundum ásamt með rjómakaffi, þá loks var farið að hugsa um að breiða á borð til sjálfrar veisl- unnar. [...] Sykurbrenndar kartöflur voru fyrst- ar rétta sendar inná víðáttumikið borð í miðstofunni; þar fylgdi alskonar ávaxtamauk, ídýfur svo þúngar að þær hnigu varla; síðan tíndust smámsaman inn svo ólíkir hlutir sem steikt frans- brauð og hángikjöt, súrhvalur og sard- ínur; og altíeinu kom heitur blómur einsog fjandinn úr sauðarleggnum. Þar komu í kjölfarið sviðnir sauða- kjammar og bláber blönduð við fagur- rauð hrútaber; síðan önnur matvæli sem oflángt yrði upp að telja. Það var einna líkast og maður hefði brotist inní matvöruverslun. Hér gat einn og sérhver etið lyst sína, eftir kenníngu og hugsjón sem hann aðhyltist í matar- æði, enda fór hver eftir sínu höfði, sumir byrjuðu á steiktu fransbrauði og enduðu á súrhval, aðrir á hrútaberi og enduðu á sauðarhaus eða súrri mysu, — því drykkir voru einnig forbornir, kúamjólk og franskt rauðvín, auk þess vökva sem þegar var nefndur. (Brekkukotsannáll, 35. kafli) Það veit trúa mín að þessi kafli er býsna sannferðug lýsing á þeim und- arlega kokteil sem samruni hefðbund- innar íslenskrar matarmenningar og danskrar var hérlendis, einkum á síð- ari hluta 19. aldar og eitthvað fram eftir þeirri 20., eins og hún birtist á borðum heldri manna. (Það staðfesta t.d. gamlir veislumatseðlar.) Þar mátti semsé hafa allt frá hrútaberjum niður í haframélsgraut með viðkomu í syk- urbrenndum kartöflum og svínakjöti með varthnígandi brúnni uppbakaðri sósu, sultutaui og rauðkáli sem lengi hefur verið talið aðalsmerki þungbú- innar matargerðar danskrar. En alþýðufólk til sjávar og sveita leggur sér annars konar fæðu og fábreyttari til munns í verkum Laxness. Sigurlína í Mararbúð og Salka Valka dóttir henn- ar lifðu mestan part á rúgbrauði og soðningu, og Ólafur Kárason Ljósvík- ingur þóttist sæll þegar hann gat soðið sér tros og vatnsgraut. Og þess háttar mataræði virðist hafa verið Þórbergi Þórðarsyni að skapi, ef marka má frægan Sósusálm hans sem endar svo; Sósurnar æxlast allsstaðar allri mannkind til bölvunar, öllum um stund til ununar, öllum þó loks til þjáningar. Tak frá mér, guð, allt sósusull, seyddar steikur og þvílíkt drull. Gefðu mér á minn græna disk grautarsleikju og úldinn fisk. En af öðrum frægum borðhalds- lýsingum í verkum Halldórs Laxness má nefna lýsinguna á því þegar Rósa, eiginkona Bjarts í Sumarhúsum, ryður í sig kjöti gimbrar þeirrar er hún slátr- aði í leyfisleysi og banni, og var sá dagur jafnframt hennar fyrsti og síð- asti hamingjudagur í hjónabandinu, og stríðstertulýsinguna í Kristnihaldi undir Jökli, þar sem Hnallþóra ber veitingar fyrir umboðsmann biskups. Sé einhver sem þetta les að búa sig undir að gerast grænmetisæta, eða langar a.m.k. til að létta mataræði sitt til muna, með því að segja skilið við klassískar steikur og sveskjugraut á sunnudögum og smurt majónesubrauð í boðum, ætti sá hinn sami að lesa skáldsögur Guðbergs Bergssonar frá og með Astum samlyndra hjóna fram að Það rís úr djúpinu. I þessari Tangasyrpu Guðbergs má víða finna borðhaldslýsingar sem ættu að geta verkað sem traust bólusetning gegn framangreindri fæðu. I upphafskafla Önnu er t.d. dæmigerð lýsing á „guð- bergsku" sunnudagsborðhaldi. Hús- móðirin kallar eiginmann sinn og son „yfirlýstar rotinpúrur, borðhaldssvín og matarskepnur" og hefur nokkuð til síns máls: . . . Feðgarnir sátu álútir við borðið, rotnir á svip yfir diskunum. Þeir tuggðu í ákafa, hvompuðu í sig rauð- kál, grænar baunir, súrar gúrkur og sultu, mumpandi ánægjulega. Konan lagði fyrir þá tvo sneisafulla diska af sveskjugraut. [•••] Meiri sósu, skipaði Kristján. Og engan graut sjóðheitari en píku. Láttu í skáp- inn. Meira rauðkál, gúrku og púður- sykur á kjötið. [...] Maðurinn þagði. Honum fannst skyn- samlegast að þau útkljáðu þrætur sín- ar sjálf. Hann syfjaði, latur innra með sér, geispaði og saup kálsoð úr skál, hugsandi um örlög matarins. Súpa í dag saur á morgun tyggja tilvonandi hægðir. 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Storð : heimur í öðru ljósi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Storð : heimur í öðru ljósi
https://timarit.is/publication/1614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.