Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 17

Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 17
HEILSUVERND 15 hæfileika til að þola þau að vissu marki. En þegar eit- urmengun blóðsins hefir náð þessu marki, gerir líkam- inn uppreisn, sem bindur um stund enda á framleiðslu eiturefnanna og upptöku þeirra i blóðið. Uppreisnin lýsir sér með algerðu lystarleysi og oft með uppköstum. Þannig er komið í veg fyrir, að sjúkl- ingurinn borði meira, og bundinn endi á frekari gerj- un og rotnun í meltingarfærunum. Uppköstin breinsa magann. Blóðið hrindir nokkru af eiturefnunum sem slími inn i meltingarfærin, og krampadrættix-nir, sem upp- köstunum fylgja, og oft eru langvinnir og ákafir, reka mikið af gaJli niður í skeifugörnina, sem hrindir því upp i magann, og svo kastar sjúklingurinn þvi upp, og léttir mjög um leið. Ef uppköstin eru mjög áköf og vara lengi, kemur það stundum fyrii', að gor úr smáþörmunum gengur upp úr sjúklingnum. Þetta veikindakast mundi binda varanlegan enda á þrautir sjúklingsins, ef hann tæki ekki jafnan upp aft- ur fyrri matarvenjur sínar, sem ásamt skeytingarleysi um liægðir og hreinsun ristilsins er frumrót vanheils- unnar. Skýringin á því, að höfuðverkjarköstin koma með vissu millibili, er þá þessi, að hvert kast brýzt fram, þegar eiturmengun likamans er komin yfir þau yztu takmörk, er líkaminn þolir. Eiturþolið. Ef orsakirnar eru látnar óáreittar, lialda eiturefnin áfram að safnast fyrir í líkamanum, en jafn- framt eykst eiturþol lians. Getur þá svo farið, að höf- uðverkjarköstin dvíni eða hverfi með öllu, svo að sjúkl- ingurinn brósar beldur en ekki bappi. En seinna koma sumir dagar og koma þó! Ef sjúkdómseinkennin bverfa, án þess að orsakirnar liafi verið brott numdar, þá er að líkindum annars verra von. Hvarf höfuðverkjarins getur ekki þýtt ann- að en það, að líkaminn þoli nú meiri eiturhleðslu

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.