Heilsuvernd - 01.04.1946, Side 19

Heilsuvernd - 01.04.1946, Side 19
HEILSUVERND 17 stólpípu, unz liann hefir öðlazt fullan þrótt á ný og tæmir sig eðlilega og af sjálfsdáðum. Borðaðu minna af kjöli, fiski, eggjum og osti. Borðaðu hýðiskorn og heilmjöl og brúnan sykur, en ekki hvíta, hýðislausa mjölið eða afliýddu grjónin né hinn hvíta lireinsaða sykur. Gættu þess, að rétt hlutföll séu á milli næringar- efnanna í fæðu þinni. Og þá mun höfuðverkurinn segja skilið við þig fyrir fullt og allt. Bólgur í beinholum. Þá er komið að liinni meginorsök höfuðverkjar, en það er þroti og bólgur í beinholum andlitis. Lækningaaðferðin er hin sama, því að þessar bólgur stafa einnig af eitursöfnun í líkamanum. Þroti og bólgur i beinholum nefs valda oft þrálátum höfuðverk, sem kennir ekki í eins reglulegum köstum og lýst er hér að framan, heldur ávallt með kvefi. Þegar þetta liefir gengið svo til árum saman, verður oft úr því stöðugur höfuðverkur, sem stafar vanalega frá ennis- holunum, en oft og tíðum frá beinholum nefs. Þá liggur höfuðverkurinn dý])t;a, honum fylgja sárindi inni í heila- búinu, hann ágerist mjög við að hogra, liósta og hnerra og yfirleitt af öllu, sem eykur blóðsóknina til höfuðs- ins, og iðulega þolir sjúklingurinn ekki einu sinni að liggja út af og verður að sofa uppréttur. Sjúkdómar í beinholum andlitís standa ávallt í sam- bandi við slímhúðarbólgur i nefi. Þetta samband er svo náið, að ef hægt er að vinna bug á slímhúðárbólgunum, þá eru bólgurnar í beinholunum um leið úr sögunni, eins og þær leggja sig. Þegar bólgur koma í beinholurnar, þá er ekki aðeins um venjulegan slímhúðarþrota að ræða, heldur einnig gröft, sem gerir ástandið enn alvarlegra. Það gefur að skilja, að þegar gröftur myndast i beinholu, sem getur ekki látið neitt undan, þá er það ekki sásaukalaust. Enda vila þeir gjörst, sem reynt hafa, hvílíkar viðþols- lausar kvalir eru samfara þessum kvilla, þegar hann er á háu stigi.

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.