Heilsuvernd - 01.04.1946, Qupperneq 30

Heilsuvernd - 01.04.1946, Qupperneq 30
28 HEILSUVERND mig, þegar ég var 29 ára, hinn 18. októher 1930. Ég er mjög barnelskur, og ég haföi vonað að geta haldið hin- um gamla ættlegg mínum við. Konan mín var líka korn- ung, og við þráðum hæði jafnheitt að eignast bam. En það vildi ekki lánast. Eins og flestar konur gera, drakk konan min kaffi með sylcri og livítu brauði frá morgni til kvölds og lifði þar að auki á kartöflum, sem skræld- ar voru liráar og ýmist soðnar eða steiktar, á fiski kjöti, fleski og eggjum, vellingum og öðrum vanalegum grjónamat. Við höfðum ekki vit á öðru og læknarnir sögðu ekkert við þessu. Bæði höfðum við hjónin mjög tregar hægðir, þjáðumst af liðagigt og vorum síkvefuð. Það er naumast þörf á að taka það fram, að eins og allt annað fólk, sem lifir á svona fæðu, vorum við iðu- lega með tannverk og höfuðverk, hálshólgur, magaverk, niðurgang og aðrar meltingartruflanir. Og hárið hrundi af mér. En þetta var ekki annað en það, sem svo margir máttu hafa og urðu að sætta sig við. Ég hafði gefið upp alla von um að losna nokkurn- tíma við eksemið og að cignast erfingja, þegar mér einn góðan veðurdag barst i hendur blaðið „Frisk- sport“. Þar las ég næringargreinar Are Waerlands, og það var líkt og að fá allt í einu vind i seglin eftir ,að hafa legið tímunum saman í logni og ládevðu. Nú kom heldur en ekki líf í tuskurnar. Ég fór með blaðið heim til konu minnar, sem var undir eins með á nótunum. Við gjörbreyttum mataræði okkar, lögðum stýrið hart á bakborða, snerum við i einni svipan og stýrðlim beint áfram fyrir fullum seglum í blásandi bjr! Við settum stefnuna beint á hinar „týndu eyjar heilsunnar'* og fundum þær! Við hættum alveg að borða kjöt, fisk og egg, kaffi, hvítt brauð, sykur og salt, og lifðuin að mestu á ósoðn- um mat. Við þessa breytingu á mataræðinu einu hvarf eksemið á fáeinum vikum gjörsamlega eins og dögg fyr- ir sólu. En liðagigtin var þrálátari, og það var ekki fyrr
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.