Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 62

Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 62
Þurfum við að óttast bakteríur? Eftir dr. Frank Kidd. Síðústu 20 árin liefir verið stefnt að þvi, að gera læknis- fræíðina æ flóknari og torveldari og kljúfa liana i smærri og smærri flokka. Nú er kominn timi til að freista þess, að færa hana aftur í einfaldara horf, með því að hagnýta sér víðfeðin lögmál, er taka yfir mikinn fjölda fyrirbrigða. Það þarf að út- skýra rækilega fyrir læknum og læknaefnum þessi lögmál, til þess að þeir megi nota þau sjálfir í starfi sínu, fá meiri ást á því og ná betri árangri. Því að á þann liátt mun þeim lærast að koma auga á og rannsaka hin fyrstu einkenni venjulegra kvilla. .Bakteriur eru ekki aöalorsök næmra sjúkdóma. Ég ber fram þessa staðhæfingu af ráðnum hug, í von uin það, að hún geri bakteriufræðingunum bilt við, svo að þeir hrökkvi upp af þvi værðarástandi, sem þeir hafa sökkt sér i. Uppgötvun bakterí- anna hefir leitt læknisfræðina út á villigötur nú um skeið. Bakteríurnar eru aukaorsök næmra sjúkdóma. Að minni hyggju eru, svo að segja í hverjum manni, margar hakteriur, sem geta orðið sjúkdómsValdar, i hálsi, ristli, húð. Einkum á þetta við um ristilbakteriuna (colon bacillus), um stafgerla og keðjugerla, lungnabólgusýkla. bakteríur þær, sem valda bólgum í slímhúðum meltingarfæra og andfæra, og senni- lcga gildir það líka um berklasýkilinn. Þessar bakteriur eru, m. ('«. o., sníkjudýr í likama manna almennt, og líklcga hýsum við l>ær allir í slímhúðum likama okkar. Þær eru sýknt og heilagt að ráðast inn i blóðið í mismunandi þéttskipuðum fylkingum, dreifast síðan út um líkamann, sem losar sig við þær eftir sömu leiðum og úrgangsefni og önnur skaðleg efni. Það er undan- tekning, ef þessar bakteríur verða að sóttkveikjum og valda bólgum í líkamanum. Spurningin er ekki sú, sem bakteríufræðingarnir hafa svo ltngi talið okkur trú um, að væri mergurinn málsins: „Hvernig eigum við að fara að því, að útrýma bakteríunum úr umhverfi okkar og úr hinum svonefndu smitberum?“ Eða m. ö. o.: „Hvern- ig getum við sótthreinsað alla veröldina?" Það er á þennan hátt, sem bakteriufræðingarnir hafa gert sér vonir um að koma i veg fyrir sjúkdóma, með útrýmingu á öllum sóttkveikjum. En

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.