Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 8
6
HEILSUVERND
kamomille te. Er nauðsynlegt að skola munninn oft, svo
að slím og óhreinindi safnist þar ekki fyrir.
5. f fimmta lagi er nauðsynlegt að gefa því gaum, að
loftið í sjúkrastofunni sé vel hreint og svo súrefnisauðugt,
sem frekast er kostur á, hver svo sem sjúkdómurinn er,
ekki sízt ef mikill sótthiti er með í spilinu. Gluggi þarf að
vera opinn dag og nótt, til þess að endurnýja loftið sem
bezt. Um fram allt má loftið í sjúkrastofunni ekki vera of
heitt. Heitt upphitað loft er súrefnissnauðara en kalt loft.
Góð loftræsting er ætíð lífsnauðsyn. — Hreint og súrefnis-
ríkt loft dregur úr sótthitanum, glæðir lífsbrunann, örvar
efnaskiptin. Margir óttast ekkert meir en kulið, en það
er ekki hættulegt, ef það er ekki of rakt. Vanalega er hita-
framleiðsla líkamans svo mikil að við ofkælingu er ekki
hætt. Það er jafnvel oft nauðsynlegt að gefa hinum sótt-
heita sjúklingi loftböð örstutta stund. Það örvar en tekur
ekki fyrir útgufunina. En hún er nauðsynleg og þarf að
gefa henni tækifæri á að sleppa burtu og nýju hreinu lofti
að komast að hörundinu. Það er ákaflega hressandi og
lífgandi fyrir hinn sjúka, að svalara loft geti leikið örlitla
stund um hörund hans eða það þvegið úr hæfilega volgu eða
svölu vatni. Nákvæm hjúkrun hefir miklu meiri þýðingu
fyrir hinn sjúka, en flest lyf. Góð hjúkrunarkona, greind
og skilningsgóð, er reglulegur engiil lífsins.
Öll hjúkrun þarf að miða að því að örva og glæða hið
sjúka og aðþrengda lífsafl. Eg hefi sjálfur fundið eitt sinn
af eigin raun, hve nákvæm hjúkrun getur blátt áfram riðið
baggamuninn hvort sjúklingur heldur lífi eða deyr, og eng-
um er sjúklingurinn þakklátari en góðri hjúkrunarkonu.
Ncering.
Hvenær má fara að næra sjúklinginn?
Lystarleysi sjúklingsins er reglulegt varúðarmerki for-
sjónar lífsins. Meðan þetta varúðarmerki er til staðar má
ekki gefa mönnum næringu. Slíkt brot myndi vinna sjúk-
lingnum alvarlegt tjón, jafnvel þótt næringarleysið hafi var-