Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 37
HEILSUVERND
35
Suðurríki Ameríku. Dr. Howard Kelly segir í bók sinni
„The vermiform Appendix":
„Negrakynflokkurinn virðist sleppa tiltölulega vel við þennan sjúk-
dóm. Til þess að afla mér frekari vitneskju um þetta, skrifaði eg
nokkrum skurðlæknum í borgum Suðurríkjanna, þar sem mikill
hluti íbúanna eru negrar. Svörin voru öll á þá leið, að. botnlanga-
bólga væri sjaldgæf meðal þessa kynflokks. Dr. L. L. Hill, í Montgo-
mery, Alabama, þar sem búa 9.000 negrar, gat ekki fundið nema 4
tilfelli meðal þeirra. Og hann sagði, að læknir, sem hafði verið
skólalæknir árum saman við Booker Washington-skóla, en þar eru
1.400 svartir námsmenn, minnist þess ekki að hafa séð þar nokkurt
tilfelli af botnlangabólgu. En i verkfræðiskólanum í Alabama, í
30 km. fjarlægð, þar sem eru 400 nemendur, hafa komið 8 tilfelli á
ári að meðaltali. 1 fyrri skólanum er óbrotið mataræði og hið sama
fyrir alla, en nemendur i hinum síðarnefnda borða í ýmsum mat-
söluhúsum í borginni.
f kolanámu einni í Alabama eru 800 svartir fangar, og læknir
þeirra segir, að botnlangabólga sé óþekkt meðal þeirra. Skýringin
á þvi, hversu sjaldgæf botnlangabólga er meðal negra, er talin vera
sú, að þeir hafi óbrotið mataræði, mikla útivist og séu lausir við
meltingartruflanir.“
Eg skrifaði lækninum við Portland-fangelsið, til að
komast að raun um, hvort botnlangabólga væri tíð meðal
fanga hér í landi, sem hefðu einfalt mataræði og hæfilega
útivist. Dr. Watson lét mér góðfúslega í té svofelldar upp-
lýsingar:
„Síðustu tíu árin er vitað hér um eitt tilfelli af botnlangabólgu.
Eg get ekki ímyndað mér, að greinileg botnlangabólga hefði komið
fyrir hér hjá okkur á þessum tíma, svo að við hefðum ekki orðið
liennar varir. Hér voru daglega að meðaltali 696 manns, miðað við
tímabilið 1. apríl 1912 til 31. marz 1913.“
3. ROBERT MacCARRISON O. FL.
Robert MacCarrison segir í „Lancet,“ 4. febrúar 1922, og
í „Journal of the American Medical Association“:
„1 9 ár starfaði eg sem læknir meðal afskekktra þjóðflokka, sem
búa lengst uppi i Himalajafjöllum, fjarri allri fágun menningarinn-
ar. Sumir þessara kynflokka eru frábærlega hraustlega og vel byggðir
líkamlega og halda léttlyndi æskunnar langt fram á elliár. Þeir eru
venjulega frjósamir og langlífir og einkennilega taugasterkir.
3*