Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 60
58
HEILSUVERND
Akureyrardeild félagsins hélt 2 íundi, annan er Waerlands-leið-
angurinn dvaldi þar, og hinn er forseti félagsins og framkvæmda-
stjóri komu þar við um haustið á heimleið frá Siglufirði, en þar
stofnuðu þeir félagsdeild hinn 25. sept. með 40 manns. Þá hefir ný-
lega verið stofnuð deild í Ólafsfirði.
Félagar eru nú samtals 1815, að deildunum meðtöldum (Akur-
eyri 100, Siglufjörður 83 og Ólafsfjörður 65). Ævifélagar eru 104.
Stjórn félagsins hefir getað útvegað deildunum lítið eitt af nýju
grænmeti s.l. vetur. 1 Reykjavik er erfitt að koma við slíkri dreif-
ingu til félagsmanna, meðan félagið ræður ekki yfir matvöruverzlun.
Matstofan. Rekstur hennar hefir gengið að óskum, og varð nokk-
ur hagnaður á árinu. Aðsókn er alltaf meiri en fullnægt verði.
Gróska h.f. Gróðurhúsin í Laugarási voru leigð árið 1947 og hafa nú
verið seld. 1 Gröf á hlutafélagið eitt gróðurhús og Heilsuhælissjóð-
ur annað. Er hugmyndin að reisa þar fleiri gróðurhús, þegar efni
verður fáanlegt, en fyrst um sinn verða þessi hús leigð ábúanda jarð-
arinnar.
Bókaútgáfan. Fyrirlestrar Are Waerlands, „Or viðjum sjúkdóm-
anna“, komu út rétt fyrir jólin sem 6. rit félagsins. Aðeins lítill
hluti upplagsins fékkst úr bókbandinu fyrir jólin, svo að félagið
missti af bezta sölutímanum. Tímaritið Heilsuvernd hefir nú um
hálft annað þúsund fastra áskrifenda. sem fer fjölgandi dag frá
degi, og er rúmur helmingur þeirra í Reykjavík. Hagur bókaútgáf-
unnar hefir batnað mjög á árinu, og má þakka það hinni miklu
sölu bóka í Waerlands-leiðangrinum, en fyrir bækur og tímarit
komu þá inn nettó 10 -11 þús. krónur.
WaerlancLs-leiöangurinn er merkasti þátturinn í starfi félagsins á
árinu og einstakur viðburður i sinni röð. Lýsing á tildrögum að
komu Waerlands hingað og ferðalaginu öllu er í bókinni „Or viðjum
sjúkdómanna", og auk þess hefir verið frá Þessu skýrt hér í ritinu.
HeilsuhælissjóÖurinn. Hagur hans hefir batnað mjög á árinu, og
mestan þátt í því á happdrættið, sem var þó skammt á veg komið
um áramót. Þá hefir sjóðnum áskotnazt talsvert fé í gjöfum, ágóði
af bazar og skemmtun, fyrir minningarspjöld o. fl. 1 Gröf standa
yfir viðgerðir á bæjarhúsunum, sem orðin voru mjög hrörleg. Enn-
fremur verður á þessu ári gerð breyting á farvegi Minni-Laxár, sem
á undanförnum áratugum hefir áriega brotið meira og minna úr
Grafartúni. Er þessi breyting gerð eftir tillögum og uppdrætti Ás-
geirs L. Jónssonar, vatnsvirkjaráðunauts, og að fenginni heimild
landbúnaðarráðherra.
FramtíÖarfyrirætlanir. Um þær segir þetta í skýrslunni: