Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 61
HEILSUVERND
59
Á þessu ári kemur út 7. rit félagsins, og fjallar það um áhrif
tóbaks og áfengis á mannslíkamann og störf hans.
Ákveðið hefír verið að stofna félagsdeild á ísafirði, og stjórnin
hefir hug á að stofna deildir í fleiri kaupstöðum úti um land. Verður
þá væntanlega bráðlega stofnað samband, sem hið upphafega NLFl
verði einn aðili að.
Þá mun verða tekin upp sú mikilsverða nýbreytni, að sýna stuttar
fræðslukvikmyndir á fundum félagsins næsta vetur, um mannslíkam-
ann, byggingu hans og störf og heilnæmar lífsvenjur. Hefir stjórn-
in þegar pantað nokkrar kvikmyndir í þessum tilgangi, og eru þær
væntanlegar til landsins innan skamms. Þá verða þessar myndir lán-
aðar félagsdeildunum úti á landi.
Enn er enginn undirbúningur hafinn að byggingu heilsuhælis. En
reynt mun að haga framkvæmdum þannig, að hægt verði sem allra
fyrst að byrja rekstur hælis, þótt í smáum stíl sé. Mundi það gefa
málinu byr undir báða vængi. Framkvæmdastjóri lauk máli sínu
Þannig:
,,Heilsuhælismálið er mál allra Islendinga, ,,mál málanna“, eins og
Baldur Johnsen, héraðslæknir á tsafirði, komst að orði í bréfi til
min nýlega. Það er NLFl, sem mun hafa forgöngu í því og
hafa veg og vanda af byggingu, stjórn og rekstri hælisins. En það
er ekki aðeins metnaðarmál, heldur sjálfsögð skylda allra þeirra,
sem trúa á nauðsyn og þýðingu þessa hælis, að styðja af alefli að þvi,
að þessi hugsjón megi rætast í náinni framtíð. Við vitum sennilega öll
um langþjáða sjúklinga, sem eiga heilsu sína og líf undir því, að
geta fengið vist í sliku hæli. Og við heitum á alla góða félagsmenn
að veita þessu velferðar- og mannúðarmáli allt sitt liðsinni og láta
einskis ófreistað til þess að heilsuhælið megi komast upp sem allra
fyrst.“
Að lokinni skýrslu framkvæmdastjóra sýndi Viggó Nathanaelsson
tvær stuttar fræðslukvikmyndir. Sú fyrri var um tennurnar, bygg-
ingu þeirra og hirðingu, en hin myndin sýndi, hvernig hinn hviti
og einhæfi sykur er unnin úr sykurrófum.
Þá las gjaldkeri félagsins, Hjörtur Hansson, reikninga félagsins og
fyrirtækja þess, ásamt athugasemdum endurskoðenda og svörum
stjórnarinnar. Fara hér á eftir nokkrar niðurstöðutölur reikning-
anna ásamt nauðsynlegum skýringum.
Félagssjóður. Skuldlaus eign er kr. 51.329,66. Við tölu þessa er þó
það að athuga, að helmingur félagsgjalda á, samkvæmt samþykkt
aðalfundar 1947, að renna í Heilsuhælissjóð. Upphæð þessi hefir
ekki enn verið gerð upp, en tekjur og eignir félagssjóðs eiga að lækka
sem henni svarar, en Heilsuhælissjóður að hækka. Við áramót var