Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 17
HEILSUVERND
15
Þá eru hreðkurnar ásamt hinum næringarmiklu, fjörefna-
og steinefnaríku blöðum sínum, og kornið með hýði sínu,
sem inniheldur 9/10 — níu tíundu — hluta af beztu eigin-
leikum kornsins, o. s. frv.
Á öllu þessu veltur líf okkar, vellíðan, heilsa, vinnuþrek,
þol, heilbrigð matarlyst, góður svefn, sterkar taugar, ó-
eigingjarnt og góðgjarnt hugarfar, jafnvægi hugans, góðir
skapsmunir, auðugt hugarflug, sköpunarmáttur, félags-
lyndi, sterk og djúp trúartilfinning — og síðast en ekki
sízt, hið æðsta af öllu þessu, kærleikurinn til Guðs og
manna.
Krábbctmeinið er vöntunarsjúkdómur, óþrifnaðarsjúk-
dómur og sjálfseitrunarsjúkdómur.
Þessar orsakir verða að hafa veiklað og brotið niður
mótstöðuafl frumuvefjanna, áður en þeir gefast upp í
baráttunni við sjúkdóminn og gefa sig honum á vald.
Krabbameinið leggst aldrei á heilbrigt líffæri.
Það er hægt að koma í veg fyrir krabbameinið nákvæm-
lega eins auðveldlega og alla aðra sjúkdóma, sem eiga sér
sömu eða svipaðar orsakir.
Eg er fús til að leggja nafn mitt, orðstir og mannorð
að veði fyrir þessum fullyrðingum.
Krabbamein leggst áldrei á heilbrigt líffæri. 1 öll þau
skipti, sem eg hefi haft tækifæri til að sannæra mig um
það sjálfur, hefir reynslan verið sú, að sjúklingurinn hafði
þjáðst af langvinnri meltingartregðu, og að krabbameinið
var óbein afleiðing hennar. Hér undanskil eg þó krabba-
mein í húð og tungu, sem hafa orsakazt af langvinnri
ertingu. En ef þessi skoðun mín er rétt, þá liggur það í
augum uppi, að til þess að koma í veg fyrir myndun
krabbameins, er nauðsynlegt að forðast þær sjúklegu
breytingar, sem matvæli og siðvenjur menningarþjóðanna
valda í meltingarveginum....
Krabbameinið er lokastigið í heilli keðju meltingartrufl-