Heilsuvernd - 01.04.1948, Page 12

Heilsuvernd - 01.04.1948, Page 12
Sir Arbuthnot Lane: Eg mun ekki ðr krabba . Menn hafa spurt mig um álit mitt á krabbameininu, þessum sjúkdómi, sem allir óttast. Eg óttast eJcki krabbameinið! Eg mun ekki deyja úr krabba! Eg veit, hvernig hægt er að koma í veg fyrir þennan sjúkdóm. Eins og eg fer að, þannig geta allir farið að, og þannig ættu allir að fara að — svo framarlega sem þeir vilja forðast þennan sjúkdóm, sem er verri en berklar, sýfilis og margir aði’ir hræðilegir sjúkdómar samanlagðir. Það er siðmenningin, sem hefir leitt krabbameinið yfir okkur. Og það sem menningin hefir leitt yfir okkur, því getur hún einnig útrýmt. Það er á valdi okkar sjálfra að losa okkur við krabba- meinið, á sama hátt og frjálsar, frumstæðar þjóðir hafa alltaf verið lausar við það og eru jafnvel enn í dag. En því aðeins eru þær lausar við þennan vágest, að þær haldi fast við hina frumstæðu og heilbrigðu lifnaðarhætti sína. Jafnskjótt og þær taka upp lífsvenjur menningar- þjóðanna, verða þær krabbameininu að bráð á sama hátt og við.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.