Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 20
18
HEILSUVERND
niðurstöðu, að skemmdur ristill, fullur af eiturefnum frá
rotnandi matarleifum og öðrum úrgangsefnum, vegna kyrr-
stöðu og tregrar tæmingar, var stærsta og hættulegasta
eiturverksmiðja líkamans og ein aðalorsök flestra mann-
legra sjúkdóma. Við það að skera burtu skemmdan ristil
hurfu líka hinir fjarskyldustu sjúkdómar, hvar sem var
í líkamanum, eins og dögg fyrir sólu. En svo skildist hon-
um brátt, að það var ekki ristillinn, sem sökina átti á
þessum óförum, heldur það, sem í hann var látið og með-
ferð manns sjálfs á honum. Sannfærðist hann um, að eina
ráðið við tregum hægðum og flestum öðrum sjúkdómum,
væri rétt mataræði og réttar lífsvenjur yfirhöfuð. Og síð-
ustu ár ævi sinnar helgaði hann almennri fræðslustarf-
semi á þessu sviði.
Árið 1925, tæpra 70 ára gamall, stofnaði hann í þessu
skyni félag það, er hann nefndi „New Heálth Society“. Hon-
um var orðið það ljóst, að ævistarf hans hafði gengið út
á það, að reyna að ráða bót á sjúkdómum, sem auðvelt
hefði verið að koma í veg fyrir, að glíma við sjúkdóms-
einkenni, í stað þess að ráðast á orsakirnar. Hugðist hann
nú að verja þeim árum, sem hann átti ólifað, í að leiða
þjóð sína í skilning um þau sannindi, að með réttum lifn-
aðarháttum er hægt að koma í veg fyrir flesta sjúkdóma.
Hann flutti fyrirlestra fyrir almenning víðsvegar um land-
ið, við æ betri aðsókn og undirtektir. Hann hafði ritað um
300 ritgerðir um skurðlækningar og önnur skyld efni. Nú
fór hann að gefa út tímarit, „New Heálth“, þar sem hann
ritaði um heilbrigðismál fyrir almenning, auk þess sem
hann skrifaði mikið í blöð og önnur tímarit. Þá gaf hann
einnig út nokkrar bækur um þessi efni.
Nokkrir starfsbræður hans réttu honum hjálparhönd
í þessari viðleitni hans. En að öðru leyti snerist lækna-
stéttin gegn honum, og varð hann fyrir hörðum ámælum
og árásum af hennar hálfu.
Það er eftirtektarvert að bera saman starf þessa merka
brautryðjanda náttúrulækningastefnunnar í Englandi og