Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 28
26
HEILSUVERND
menningarþjóðanna eru með öllu óþekktir. En jurtasjúk-
dómar þekkjast þar ekki heldur. I greininni var frá því
skýrt, að Húnsabúar ættu hreysti sína og sjúkdómaleysi
hinum einföldu og heilnæmu lifnaðarháttum sínum að
þakka, einkum mataræðinu, og hefir hinn kunni læknir
og næringarfræðingur, Englendingurinn Róbert Mac Carri-
son, sannað þetta með fóðrunartilraunum, og komizt að
þeirri niðurstöðu, að með matarœðinu einu er hægt að
framleiða flesta mannlega sjukdóma og á sama hátt hægt
að koma í veg fyrir þá.
Nú hefir annar enskur vísindamaður, Sir Alfred Howard,
sannað með löngum og ítarlegum tilraunum, að alla jurta-
sjúkdóma er, hvort heldur sem er, hægt að framleiða eða
koma í veg fyrir með viðeigandi ræktunaraðferðum. Og
það merkilega er, að rannsóknir sínar gerði hann einmitt
austur í Indlandi, ekki langt frá Húnzarikinu. Uppgötvanir
hans eru ekki nýjar af nálinni, því að hann skýrði frá
þeim í bók, sem kom út árið 1931 og heitir „The waste
products of agriculture“ (Úrgangsefni jarðyrkjunnar). —
Það sýnir vel, hve erfitt uppdráttar miklar uppgötvanir
eiga, að menn skuli enn, með misjöfnum árangri og ærnum
tilkostnaði, ausa eiturefnum í tonnatali yfir akra og garða
og verða þar að auki að horfa upp á eyðileggingu á heilum
uppskerum, sautján árum eftir að óyggjandi sannanir hafa
verið færðar fyrir því, að hægt er með einföldum ráðum
og án verulegs tilkostnaðar að þurrka út flesta eða alla
jurtasjúkdóma.
Sir Alfred Howard var, sem ungur grasafræðingur, skip-
aður jarðræktarráðunautur Indlandsstjórnar, og hélt hann
því starfi frá 1905 til 1924. Þá var hann skipaður forstjóri
við „lnstitute of plant industry“ í Indor.
Nokkru eftir komu Howards til Indlands lét stjórnin
honum í té til tilraunastarfsemi 75 ekrur lands í héraðinu
Pusa (1 ekra er um 2/5 úr hektara eða rúm túndagslátta).
Tilraunir hans í Pusa gengu út á það að reyna að finna, á
hvern hátt hægt væri að lækna og útiloka jurtasjúkdóma