Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 29

Heilsuvernd - 01.04.1948, Síða 29
HEILSUVERND 27 með því að styrkja náttúrlegan varnarmátt jurtanna með réttum áburðar- og ræktunaraðferðum, án þess að nota nokkur meðul. Meðan á þessum tilraunum stóð, var Ho- ward fengin önnur tilraunastöð í héraðinu Quetta í norð- austurhluta Indlands, ekki langt frá Húnsalandinu. I Quetta þekktust engir jurtasjúkdómar, ekki fremur en menningarsjúkdómar í Húnsalandi. I tilraunastöðinni í Quetta uxu því upp alheilbrigðar jurtir. Og nú hóf Howard hinar merkilegu og sannfærandi víxl-tilraunir sínar. Hann tók fræ heilbrigðra jurta í Quetta og sáði því í Pusa. Jurtirnar, sem upp af því komu, fengu nákvæmlega sömu sjúkdóma og aðrar jurtir í Pusa. Jafnframt tók hann fræ sjúkra jurta í Pusa og sáði því í Quetta. Þær jurtir urðu alheilbrigðar og ómóttækilegar fyrir sjúkdóma. En Howard lét hér ekki staðar numið. Hann flutti jurtir, sýktar af bakteríum og ormum, frá Pusa til Quetta, til þess að sjá, hvort þær megnuðu að sýkja hinar heilbrigðu jurt- ir þar. En það tókst ekki. Jurtirnar í Quetta virtust með öllu ónæmar fyrir hverskonar jurtasjúkdómum. Sjúkdómarnir hurfu, bakteríurnar og ormarnir þrifust ekki í jarðvegin- um í Quetta og dóu út. Howard var nú tekið að gruna það fastlega, að jurtirnar í Quetta ættu hreysti sína og sjúkdómaónæmi áburðinum og ræktunaraðferðinni að þakka, þ. e. a. s. jarðveginum og undirbúningi hans. Til þess að ganga enn betur úr skugga um þetta, lét hann rækta tilraunareit í stöðinni í Quetta með samskonar aðferðum og í Pusa. 1 þessum reit komu upp nákvæmlega sömu jurtasjúkdómar og í stöðinni í Pusa. Nú þurfti ekki lengur vitnanna við. Til frekari sönn- unar og öryggis fyrir því, að niðurstöður hans væru réttar, fór hann nú að nota i Pusa þær ræktunaraðferðir, sem reyndust svo vel í Quetta. Árangurinn varð sá, að innan skamms hurfu állir jurtasjúkdómar þar, eins og dögg fyrir sólu. Sir Alfred Howard hafði þannig sannað, með ítarlegum og nákvæmum vísindalega framkvæmdum tilraunum, að

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.