Heilsuvernd - 01.04.1948, Side 34
32
HEILSUVERND
lítið eitt þekkt, mjög lítt þekkt eða með öllu óþekkt meðal
innfæddra.
2. ÚR ENSKA LÆKNABLAÐINU ,,LANCET“.
Hið þekkta enska læknablað „Lancet“ birti merkilega
ritgerð 25. júlí 1914, eftir þekktan skurðlækni frá Liver-
pool, R. W. Murray. Fjallar hún um útbreiðslu botnlanga-
bólgu og skýrir frá rannsókn, sem höfundur hafði gert í
framhaldi af þeirri, sem skýrt er frá hér að ofan. Þar segir:
„Á því getur enginn efi leikið að botnlangabólga er miklu tíðari nú
en fyrir 20 árum. Auk þess hefir reynsla min fært mér heim sann-
inn um það, að sjúkdómurinn sjálfur hefir tekið breytingum. Fyrir
20 árum var eg vanur að nota bakstra við botnlangabólgu og gæta
þess, að hægðir væru góðar. Eg þurfti mjög sjaldan að gera botn-
langaskurð. Nú virðist sjúkdómurinn hafa breytt sér og vera orð-
inn miklu magnaðri, svo að eg geri botnlangaskurð óðara en eg
hefi gengið úr skugga um, að um botnlangabólgu er að ræða.
Fyrir nokkrum mánuðum skrifaði eg læknum í öðrum heimsálfum
og spurði þá, hvort þeir yrðu oft varir við botnlangabólgu og hvort
hún kæmi fyrir meðal innfæddra. Eg vandaði mjög til vals þeirra
manna, sem eg skrifaði. Flestir þeirra hafa starfað við spitala nokk-
ur ár í viðkomandi héraði. Hér fara á eftir höfuðdrættirnir úr bréfum
þeim, er eg fékk“:
Nyassáland, MiÖ-Afríku. A. H. Barley segir:
1. Eg hefi aldrei séð botnlangabólgu meðal innfæddra.
2. Eg spurði Dr. Caverhill, frá trúboðsstöðinni í Blantyre. Hann
hefir spitala fyrir innfædda og hefir verið hér í 10 ár. Hann leyfði
mér að skýra frá því, að meðal 5.000 spítalasjúklinga hafi hann
aldrei séð neinn með botnlangabólgu.
3. Eg hefi haft hér 4 Evrópumenn með botnlangabólgu."
Fez, Marokkó. E. 8. Verdon segir:
„Meðal innfæddra Marokkóbúa er botnlangabólga mjög sjaldgæf.
Eftir 16 ára starf inni í landi man eg ekki eftir nema 2 tilfellum.
Hinsvegar hefi eg séð nokkur tilfelli meðal Evrópumanna, en eg
starfaði aðallega meðal innfæddra."
Enski trúboðsspítalinn, Jerúsalem. C. H. Carbett segir:
„Meðal hérlendra Gyðinga sjáum við botnlangabólgu sjaldnar en